Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Svæfingahjúkrunarfræðingur - Svæfingadeild Hringbraut

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

08.05.2026

Umsóknarfrestur

18.05.2026

Svæfingahjúkrunarfræðingur - Svæfingadeild Hringbraut

Við óskum eftir að ráða til starfa metnaðarfullan hjúkrunarfræðing með sérhæfingu í svæfingahjúkrun. Í boði er starf á frábærum vinnustað þar sem samvinna, faglegt starf, þróun og öryggi sjúklinga eru höfð að leiðarljósi. Unnið er í vaktavinnu samkvæmt vaktaskipulagi deildarinnar á bundnum vöktum og bakvöktum. Starfshlutfall er 80-100% og er starfið laust frá 1. ágúst 2026 eða eftir nánara samkomulagi.

Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.

Á svæfingadeild Landspítala við Hringbraut starfa rúmlega 40 svæfingahjúkrunarfræðingar við fjölbreytt og krefjandi verkefni, í nánu samstarfi við fagfólk í öðrum sérgreinum. Við bjóðum upp á góðan vinnustað þar sem áhersla er lögð á fagmennsku, framþróun og þjálfun eftir þörfum hvers og eins. Deildin heyrir undir skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæsluþjónustu.

Svæfingardeildir við Hringbraut og í Fossvogi horfa í auknu mæli til aukinnar samvinnu til undirbúnings þegar deildirnar verða sameinaðar í nýjum meðferðarkjarna. Liður í þessu er meðal annars samræming verkferla og skiptiprógram þar sem starfsfólk kynnist báðum deildum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Svæfingar og deyfingar sjúklinga við skurðaðgerðir og önnur inngrip

  • Ákveða, skrá og veita hjúkrunarmeðferð í samráði við þarfir skjólstæðinga og bera ábyrgð á meðferð samkvæmt starfslýsingu og vinnureglum deildar

  • Símainnritun sjúklinga fyrir dagdeildaraðgerðir

  • Verkjaeftirliti ásamt öðrum sérhæfðum verkefnum á ýmsum deildum spítalans

  • Þátttaka í teymisvinnu og umbótastarfi deildar

  • Ýmis önnur verkefni

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Viðbótarnám í svæfingahjúkrun er skilyrði

  • Áhugi á að taka þátt í framþróun hjúkrunar

  • Góð samskiptahæfni og jákvætt viðmót

  • Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð

  • Hæfni og geta til að starfa í teymi og takast á við breytingar

  • Góð íslenskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, sérfræðingur í hjúkrun, hjúkrun

Tungumálahæfni: íslenska 4/5

Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 18.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Bergþóra Eyjólfsdóttir

deildarstjóri

Tölvupóstur: bergthey@landspitali.is

Sími: 824-5226

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Svæfingahjúkrunarfræðingur - Svæfingadeild Hringbraut

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

08.05.2026

Umsóknarfrestur

18.05.2026