
Þjónustuaðili
Samgöngustofa
Upplýsingar um starf
Starf
Ertu sérfræðingur í rafmagni?
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
30.04.2026
Umsóknarfrestur
11.05.2026
Ertu sérfræðingur í rafmagni?
Siglingasvið Samgöngustofu óskar eftir ráða einstakling í fjölbreytt og spennandi starf við yfirferð og mat á rafkerfum skipa. Við bjóðum upp á þjálfun, starfið hentar því jafnvel nýútskrifuðum sem og reynslumeiri einstaklingum sem vilja byggja upp þekkingu og reynslu á þessu sviði. Sérhæfing á sviði skipatækni býður upp á mikla möguleika til framtíðar á spennandi vettvangi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Yfirfara hönnun og útfærslu rafkerfa skipa með tilliti til reglna og staðla.
Taka þátt í faglegum samskiptum við hönnuði, útgerðir og skoðunaraðila.
Aðstoða við tæknilegt mat og þróa faglega þekkingu á sviði skipatækni.
Aðstoð við úttektir á rafbúnaði skipa í samstarfi við aðra sérfræðinga.
Þróun gæðakerfis skipadeildar í samstarfi við verkefnastjóra siglingasviðs.
Hæfniskröfur
Menntun sem nýtist í starfi, t.d. verkfræði, tæknifræði, rafiðnfræði, rafvirkjun, vélfræði eða sambærilegt.
Áhugi á tæknimálum og vilji til að læra og tileinka sér nýja þekkingu.
Jákvæðni og góð samskiptafærni.
Frumkvæði og góð skipulagshæfni.
Gott vald á íslensku og ensku í rituðu og töluðu máli.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Samgöngustofa fer með stjórnsýslu og eftirlit varðandi flug, siglingar, umferð, og öryggiseftirlit með samgöngumannvirkjum og leiðsögu. Í boði er spennandi starf hjá metnaðarfullri stofnun með öflugum mannauði, skýran samfélagslegan tilgang og framtíðarsýn. Lögð er áhersla á uppbyggingu faglegs starfsumhverfis, góða starfsaðstöðu og sveigjanleika í starfi.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 11.05.2026
Nánari upplýsingar veitir
Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir
Framkvæmdastjóri siglingasviðs
Sími: 480 6000

Þjónustuaðili
Samgöngustofa
Upplýsingar um starf
Starf
Ertu sérfræðingur í rafmagni?
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
30.04.2026
Umsóknarfrestur
11.05.2026