
Þjónustuaðili
Samgöngustofa
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í deild leyfisveitinga og ökunáms
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
30.04.2026
Umsóknarfrestur
11.05.2026
Sérfræðingur í deild leyfisveitinga og ökunáms
Samgöngustofa leitar að öflugum einstaklingi í stöðu sérfræðings í leyfisveitingum í deild leyfisveitinga og ökunáms á umferðarsviði stofnunarinnar. Starfið tilheyrir þriggja manna leyfisveitinga- og undanþáguteymi. Í deildinni er unnið að þróun og uppbyggingu verkefna og stafvæðingu ferla. Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á umferðaröryggismálum, stöðugum umbótum og er góður liðsmaður. Starfshlutfall er 100%. Um tímabundið starf til 12 mánaða er að ræða.
Helstu verkefni og ábyrgð
Stjórnsýsla og utanumhald með leyfisveitingum fyrir bílaleigur, leigubílaakstur, farþega- og farmflutninga.
Útgáfa undanþágu vegna stærðar og þyngdar ökutækja.
Samskipti við hagsmunaaðila, aðstoð og upplýsingamiðlun.
Skráning í skjalakerfi og frágangur gagna.
Þátttaka í þróun og uppbyggingu verkefna, ferla og stafrænnar vegferðar
Hæfniskröfur
Menntun og reynsla sem nýtist í starfi.
Reynsla af sambærilegu starfi er kostur.
Rík þjónustulund og færni í mannlegum samskiptum er skilyrði.
Sjálfstæði, frumkvæði og metnaður í starfi.
Góð almenn tölvukunnátta er skilyrði.
Góð færni í íslensku og ensku í rituðu og mæltu máli.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Öllum umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf. Í ráðningarferlinu verður óskað eftir að umsækjendur skili sakavottorði. Hafi umsækjandi verið fundinn sekur um refsiverða háttsemi getur það orðið til þess að viðkomandi telst ekki hæfur til að gegna starfi hjá stofnuninni. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í a.m.k. sex mánuði ef staða losnar á ný. Samgöngustofa áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Samgöngustofa hvetur fólk óháð kyni, þjóðernisuppruna og fötlun til að sækja um.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 11.05.2026
Nánari upplýsingar veitir
Sædís Birta Barkardóttir
deildarstjóri leyfisveitinga og ökunáms
Sími: 480 6000

Þjónustuaðili
Samgöngustofa
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í deild leyfisveitinga og ökunáms
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
30.04.2026
Umsóknarfrestur
11.05.2026