
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á HSU Selfossi - sumarstarf með möguleika á áframhaldandi ráðningu
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
30.04.2026
Umsóknarfrestur
11.05.2026
Hjúkrunarfræðingur á HSU Selfossi - sumarstarf með möguleika á áframhaldandi ráðningu
Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing til starfa í sumarafleysingu á heilsugæsluna á Selfossi, með möguleika á áframhaldandi ráðningu í haust. Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf í öflugum og samheldnum starfshópi þar sem fagmennska og umhyggja eru í forgrunni.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið felst í almennri hjúkrun, móttöku á heilsugæslu, heimahjúkrun og annað sem kemur að heilsugæsluvinnu.
Mikið er lagt upp úr góðri þverfaglegri samvinnu þar sem fagmennska, umhyggja og virðing fyrir skjólstæðingnum og fjölskyldu þeirra er höfð að leiðarljósi.
Hæfniskröfur
Vottorð um hjúkrunarnám frá viðurkenndri menntastofnun.
Gilt starfsleyfi frá landlækni.
Frumkvæði, áreiðanleiki og jákvæðni.
Árangursmiðað viðhorf
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
HSU veitir heilsugæslu-, sjúkrahús- og öldrunarþjónustu ásamt því að annast sjúkraflutninga. Þjónustusvæðið nær frá Þorlákshöfn í vestri til Hafnar í austri.
Hlutverk HSU er að móta, þróa og útfæra heilbrigðisþjónustu í umdæminu og tryggja íbúum Suðurlands og öðrum þjónustuþegum jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni.
Þjónustumarkmið HSU byggja á gildum okkar um fagmennsku, virðingu og samvinnu. Velferð og þarfir þjónustuþega eru okkar leiðarljós.
Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf í góðum hópi á öflugri heilsugæslustöð, Heilbrigðisstofnunar Suðurlands Selfossi.
Upphafsdagur ráðningar er eftir samkomulagi
Umsókninni þurfa að fylgja staðfestar upplýsingar um menntun, starfsleyfi og fyrri störf.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 11.05.2026
Nánari upplýsingar veitir
Margrét Björk Ólafsdóttir
Tölvupóstur: margret.b.olafsdottir@hsu.is

Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á HSU Selfossi - sumarstarf með möguleika á áframhaldandi ráðningu
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
30.04.2026
Umsóknarfrestur
11.05.2026