Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Verkefnastjóri í fjármálatengdum verkefnum

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

05.05.2026

Umsóknarfrestur

15.05.2026

Verkefnastjóri í fjármálatengdum verkefnum

Laust er til umsóknar fullt starf verkefnastjóra í fjármálatengdum verkefnum á skrifstofu Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands.

Um er að ræða stjórnsýslustarf í lifandi háskólaumhverfi. Starfið felur í sér tækifæri til að þróa verklag, efla upplýsingaflæði og vinna að verkefnum sem tengjast námi, kennslu, rannsóknum og þekkingarsköpun í þágu heilbrigðisvísinda.

Meginhlutverk verkefnastjóra er að stuðla að hagkvæmum rekstri og faglegri þjónustu innan fjármálateymis sviðsins, í nánu samstarfi við rekstrarstjóra. Í starfinu reynir á greiningarhæfni, samskipti, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Kostnaðargreining, reikningagerð, millifærslur og samþykkt reikninga

  • Umsjón með kostnaðarhlið kennsluáætlana og uppgjöri kennslu

  • Umsjón með tímaskráningarkerfi vegna kennslu og leiðbeiningar

  • Fjárhagsleg umsýsla vegna rannsóknarstyrkja og rannsóknareikninga

  • Gagnaúrvinnsla og upplýsingamiðlun

Hæfniskröfur

  • Bakkalárpróf í viðskiptafræði, hagfræði eða skyldum greinum sem nýtast í starfi

  • Góð færni í Excel

  • Gott vald á upplýsingatækni og hæfni til að nýta nýjungar, þar á meðal gervigreind og stafrænar lausnir, til umbóta í starfi

  • Reynsla af sambærilegum verkefnum er kostur

  • Góð samstarfshæfni og rík þjónustulund

  • Sjálfstæð, skipulögð og lausnamiðuð vinnubrögð

  • Góð færni í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Starfsstöðin er á skrifstofu Heilbrigðisvísindasviðs í Læknagarði við Vatnsmýrarveg 16. Þar vinnur hópur sérfræðinga saman í teymum að fjölbreyttum verkefnum á sviði kennslu, rannsókna, mannauðsmála, markaðsmála, reksturs og fjármála.

Í tengslum við endurskoðun á skipulagi stjórnsýslu og stoðþjónustu, sem og fyrirhugaðan flutning Heilbrigðisvísindasviðs í nýtt húsnæði, er starfsemi sviðsins í þróun. Verkefni og áherslur starfsins kunna því að taka breytingum.

Gert er ráð fyrir að viðkomandi getið hafið störf sem fyrst eða skv. nánara samkomulagi.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  • Ferilskrá

  • Kynningarbréf þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins

  • Afrit af prófskírteinum

  • Upplýsingar um umsagnaraðila

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi. 36 stunda vinnuvika hefur verið innleidd í stjórnsýslustörfum skólans.

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 15.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Erna Sigurðardóttir

rekstrarstjóri Heilbrigðisvísindasviðs

Tölvupóstur: ernas@hi.is

Sími: 5255889

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Verkefnastjóri í fjármálatengdum verkefnum

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

05.05.2026

Umsóknarfrestur

15.05.2026