Þjónustuaðili
Útlendingastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Móttökufulltrúi-Sumarstarf
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
29.04.2026
Umsóknarfrestur
11.05.2026
Móttökufulltrúi-Sumarstarf
Útlendingastofnun leitar að þjónustulunduðum móttökufulltrúa í sumarstarf hjá stofnuninni. Verksvið móttökufulltrúa er fjölbreytt, t.a.m. afgreiðsla og ráðgjöf til þjónustuþega stofnunarinnar, símsvörun, netspjall, umsjón með myndatökum, fjölbreytt bakvinnsla og önnur tilfallandi verkefni. Móttökufulltrúi heyrir undir teymisstjóra.
Útlendingastofnun er spennandi vinnustaður á fleygiferð í stafrænni vegferð. Hjá stofnuninni starfar um 110 manna samhentur hópur á fjórum sviðum. Umfangsmesti þátturinn í starfsemi stofnunarinnar er útgáfa dvalarleyfa. Útlendingastofnun afgreiðir umsóknir um dvalarleyfi, hvort sem um er að ræða dvalarleyfi á grundvelli atvinnuþátttöku, fjölskyldusameiningar, námsvistar eða vistráðningar. Þá afgreiðir stofnunin einnig vegabréfsáritanir, umsóknir um ríkisborgararétt og umsóknir um alþjóðlega vernd. Lögð er rík áhersla á að vinnustaðurinn sé fjölskylduvænn og að starfsandi sé til fyrirmyndar. Boðið er upp á góða vinnuaðstöðu, 36 stunda vinnuviku og sveigjanlegan vinnutíma.
Helstu verkefni og ábyrgð
Afgreiðsla og ráðgjöf til þjónustuþega
Símsvörun
Netspjall
Umsjón með myndatökum
Bakvinnsla
Starfa í samræmi við stefnur og markmið stofnunarinnar
Þátttaka í teymisvinnu
Hæfniskröfur
Mjög góð færni í mannlegum samskiptum og þjónustulund
Mjög góð kunnátta í íslensku og ensku í ræðu og riti er skilyrði
Reynsla af þjónustustarfi er mikill kostur
Góð almenn tölvukunnátta
Kunnátta í einu norðurlandatungumáli
Sjálfstæði í vinnubrögðum
Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Umsókn skal fylgja ferilskrá að hámarki 2 bls. ásamt mynd. Umsóknir á erlendum tungumálum eða án ferilskráa verða ekki teknar til greina. Við ákvörðun um boðun í starfsviðtal verður sérstaklega horft til gæða umsóknargagna.
Við ákvörðun um ráðningu verður, auk framangreindra hæfnisviðmiða, tekið mið af frammistöðu í starfsviðtali og umsagna sem aflað verður.
Vakin er athygli á því að umsækjendur þurfa að vera reiðubúnir til að framvísa sakavottorði.
Eingöngu er tekið við umsóknum rafrænt í gegnum vefgátt Starfatorgs.
Áhugasamir eru hvattir til að sækja um starfið, óháð kyni. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfresti lýkur. Öllum umsóknum verður svarað eftir að ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Um er að ræða sumarstarf og æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf í maí og geti starfað í um 3 mánuði samfleytt.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 11.05.2026
Nánari upplýsingar veitir
Dómhildur Árnadóttir
Tölvupóstur: domhildur@utl.is
Þjónustuaðili
Útlendingastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Móttökufulltrúi-Sumarstarf
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
29.04.2026
Umsóknarfrestur
11.05.2026