Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Doktorsnemi við Lífvísindasetur Háskóla Íslands

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

19.05.2026

Umsóknarfrestur

15.06.2026

Doktorsnemi við Lífvísindasetur Háskóla Íslands

Laust er til umsóknar fullt starf doktorsnema til rannsókna á TGF-beta boðleiðinni og stjórnun umritunar í mennskum næriþekjustofnfrumum (human Trophoblast Stem Cells) í þroskun fylgjunnar.

Verkefnið er styrkt til þriggja ára af Rannsóknasjóði Vísinda- og tækniráðs og verður unnið við Lífvísindasetur innan Læknadeildar Háskóla Íslands. Guðrún Valdimarsdóttir, dósent við Læknadeild verður leiðbeinandi í þessu verkefni. Upplýsingar um rannsóknarhópinn má finna hér.

Markmið verkefnisins er að finna út á sameindafræðilegum grundvelli hvar hlutverk ólíkrar TGFbeta/SMAD umritunarvirkni liggi á bak við eðlilega sérhæfingu næriþekjufruma og frumuskrið þeirra og hvað fer þar úrskeiðis í meðgöngueitrun, svo að greining og inngrip geti átt sér stað fyrr á meðgöngu í slíku tilfelli.

Meingerð meðgöngueitrunar er ekki að fullu þekkt, en talið er að sjúkdómurinn stafi af afbrigðilegri fylgjumyndun. Í eðlilegri meðgöngu ferðast næriþekjufrumur fósturs til skrúfslagæðar móður og gangast undir sýndar-æðamyndun þegar þær taka yfir hlutverk upprunalegra æðaþelsfruma í skrúfslagæðum. Þessi endurmótun leiðir til minna viðnáms og þar með aukins blóðflæðis til fósturs. TGFbeta/SMAD boðleiðin er ein þeirra sem hefur verið tengd ferlinu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Slá út SMAD genin í næriþekjustofnfrumum með CRISPR-Cas9 erfðabreytingartækninni og framkvæma stak-frumu RNA raðgreiningu á utan-totu næriþekjufrumum.

  • Framkvæma CUT&RUN aðferðina til að kortleggja markgen SMAD próteina og mæla umritunarvirkni TGFbeta/SMAD próteina í rauntíma í sérhæfingu ífarandi næriþekjufrumna með hjálp flúrljómandi klöguskjóða.

  • Beita hefðbundnum sameinda- og frumulíffræðilegum aðferðum.

Hæfniskröfur

  • Meistarapróf í sameindalífvísindum eða skyldum greinum. Umsækjandi skal hafa lokið prófi þegar starf hefst.

  • Reynsla af sjálfstæðum vísindastörfum á rannsóknastofu með lífefna-, sameinda- og frumulíffræðilegum aðferðum.

  • Reynsla af vinnu við frumurækt spendýrafruma er æskileg og reynsla af CRISPR og RNA-raðgreining er talinn kostur.

  • Góð tölvufærni æskileg.

  • Góð enskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli.

  • Sjálfstæð vinnubrögð og góð samskiptafærni.

Ráðning er háð því að umsækjandi sæki formlega um doktorsnám við Heilbrigðisvísindasvið og að umsóknin sé samþykkt af deild. Þeir sem sækja um verða að uppfylla lágmarkskröfur sem gerðar eru til doktorsnema við Heilbrigðisvísindasvið HÍ. Doktorsnám Heilbrigðisvísindastofnun

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.

Áætlað er að viðkomandi hefji störf í september 2026, en eigi síðar en í janúar 2027.

Graduate program in molecular life science (GPMLS) heldur utan um framhaldsnema í sameindalífvísindum. Markmið GPMLS er að efla menntun og rannsóknir á sviði sameindalífvísinda og gera rannsóknartengt nám sýnilegt og eftirsótt hér innanlands og alþjóðlega. GPMLS hefur reynst örvandi umhverfi fyrir nemendur í slíku framhaldsnámi.

Vinsamlega skilið eftirfarandi gögnum með umsókninni:

  • Greinagerð (hámark tvær bls.) þar sem umsækjandi lýsir því hvernig hann uppfyllir skilyrði starfsins. Auk þess skal lýst áhuga viðkomandi á verkefninu og hvað umsækjandi getur lagt af mörkum til þess.

  • Ferilskrá.

  • Staðfest afrit af prófskírteinum (grunn- og meistaranám) og einkunnadreifing.

  • Upplýsingar um tvo umsagnaraðila þar sem fram koma tengsl við umsækjanda, netfang og símanúmer.

  • Yfirlit yfir birtingar.

  • Umsækjendum er einnig boðið að senda PDF útgáfu af meistararitgerð sinni (á hvaða tungumáli sem er) sem og aðrar birtingar sem við eiga (hámark 5 skjöl).

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi. 36 stunda vinnuvika hefur verið innleidd í stjórnsýslustörfum skólans.

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 15.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Guðrún Valdimarsdóttir

dósent

Tölvupóstur: gudrunva@hi.is

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Doktorsnemi við Lífvísindasetur Háskóla Íslands

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

19.05.2026

Umsóknarfrestur

15.06.2026