Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Aðjúnkt í íslenskukennslu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

30.04.2026

Umsóknarfrestur

11.05.2026

Aðjúnkt í íslenskukennslu

Laust er til umsóknar fullt starf aðjúnkts á sviði íslenskukennslu við Deild faggreinakennslu við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Starfið er tímabundið til tveggja ára. Starfsskyldur aðjúnktsins skiptast i 65% kennslu, 31% rannsóknir og 4% stjórnun. Lögð er áhersla á þverfræðilegt samstarf og liðsheild á vinnustaðnum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Kennsla í námskeiðum í íslensku og íslenskukennslu, einkum um ritun, læsi og bókmenntir

  • Leiðsögn með lokaverkefnum nemenda

  • Rannsóknir á sviði íslensku og íslenskukennslu

  • Þátttaka í þróun kennsluhátta og rannsókna í íslenskukennslu innan Menntavísindasviðs

  • Þátttaka í þróun kennaranáms og stjórnunarstörfum á námsleiðunum Grunnskólakennsla með áherslu á íslensku, B.Ed. og Kennsla íslensku, M.Ed./M.T

Hæfniskröfur

  • Meistarapróf á sviði íslenskra bókmennta eða íslenskukennslu, doktorspróf er kostur

  • Reynsla af kennslu íslensku í grunnskóla eða framhaldsskóla er æskileg

  • Reynsla af kennslu á háskólastigi er kostur

  • Reynsla af rannsóknum og birtingar á rannsóknarniðurstöðum er kostur

  • Samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.

Horft verður til þess að ráðningin falli sem best að aðstæðum og þörfum deildar.

Ráðið er í starfið til tveggja ára frá 1. júlí 2026.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  • Greinargerð, þar sem umsækjandi lýsir hvernig hann uppfyllir skilyrði starfsins (hámark tvær blaðsíður)

  • Ferilskrá um nám og störf

  • Skýrsla um kennslureynslu umsækjanda og sýn hans á kennslu og kennsluþróun

  • Yfirlit yfir rannsóknir og ritsmíðar (ritaskrá) og fyrirhugaðar rannsóknir

  • Staðfest afrit af prófskírteinum

  • Upplýsingar um tvo umsagnaraðila þar sem fram koma tengsl við umsækjanda, netfang og símanúmer viðkomandi

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 11.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Elsa Eiríksdóttir

Tölvupóstur: elsae@hi.is

Jón Yngvi Jóhannsson

Tölvupóstur: jonyngvi@hi.is

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Aðjúnkt í íslenskukennslu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

30.04.2026

Umsóknarfrestur

11.05.2026