Þjónustuaðili
Vegagerðin
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur á tæknideild á Norðursvæði
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
11.05.2026
Umsóknarfrestur
26.05.2026
Sérfræðingur á tæknideild á Norðursvæði
Vegagerðin auglýsir eftir öflugum einstaklingi til að sinna hönnun og undirbúningi vegaframkvæmda á Tæknideild Norðursvæðis. Starfið felst fyrst og fremst í hönnun og hönnunarstjórn vegamannvirkja og gerð kostnaðaráætlana og útboðsgagna.
Tæknideild Norðursvæðis fer með hönnun og undirbúning verkefna á svæðinu í nýframkvæmdum, viðhaldi og öryggisaðgerðum. Auk þess ber deildin ábyrgð á landmælingum, skipulagsmálum, leyfisveitingum o.fl.. Starfsmenn vinna í nánu samstarfi við aðrar deildir Vegagerðarinnar. Norðursvæði nær frá Holtavörðuheiði að Biskupshálsi á Möðrudalsöræfum og upp á miðhálendi. Starfsstöðin er á Akureyri eða Sauðárkróki.
Helstu verkefni og ábyrgð
Hönnun vegamannvirkja, allt frá frumdrögum til verkhönnunar.
Gerð útboðsgagna fyrir ráðgjöf og verklegar framkvæmdir.
Gerð kostnaðaráætlana.
Hönnunarstjórn.
Hönnunarrýni.
Magnreikningar.
Samráð við hagsmunaaðila við undirbúning framkvæmda.
Hæfniskröfur
Verk- eða tæknifræðimenntun, eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
Reynsla og kunnátta í notkun teiknikerfa (Cad) æskileg.
Reynsla af hönnun samgöngumannvirkja er æskileg.
Reynsla af verkefnisstjórn er æskileg.
Góð tölvukunnátta.
Skipulagshæfni, frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt.
Góð samskiptafærni.
Góð kunnátta í talaðri og ritaðri íslensku og ensku.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Verkfræðingafélag Íslands hafa gert.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um færni viðkomandi til að gegna starfinu, auk afrita af prófskírteinum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdastofnun landsins með gríðarlega fjölbreytta verkefnaflóru. Vegagerðin þróar og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi. Um 370 starfsmenn Vegagerðarinnar starfa á 18 starfsstöðvum víðsvegar um landið
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 26.05.2026
Nánari upplýsingar veitir
Rúna Ásmundsdóttir
deildarstjóri tæknideildar
Tölvupóstur: runa.asmundsdottir@vegagerdin.is
Sími: 5221000
Þjónustuaðili
Vegagerðin
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur á tæknideild á Norðursvæði
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
11.05.2026
Umsóknarfrestur
26.05.2026