
Þjónustuaðili
Barna- og fjölskyldustofa
Upplýsingar um starf
Starf
Starf ráðgjafa á meðferðarheimili Esju
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
15.06.2026
Umsóknarfrestur
25.06.2026
Starf ráðgjafa á meðferðarheimili Esju
Vilt þú taka þátt í krefjandi og gefandi starfi með unglingum? Barna- og fjölskyldustofa óskar eftir að ráða ráðgjafa á meðferðarheimili Esju, um er að ræða ráðgjafa í fastráðningu í 100% stöður og 50% stöður í vaktavinnu sem heyrir undir forstöðumann og deildarstjóra heimilisins.
Starfsstöð Esju er tímabundið staðsett á Vogi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Umönnun og gæsla unglinga.
Einstaklingsbundinn stuðningur við unglinga í samvinnu við deildarstjóra, verkefnastjóra, sálfræðinga og forstöðumann.
Meðferðarvinna og vinna að tómstundastarfi með unglingum.
Samskipti við foreldra og samstarfsaðila.
Vinna eftir verklagsreglum.
Önnur verkefni í samráði við yfirmenn.
Hæfniskröfur
Reynsla og/eða menntun sem að mati forstöðumanns nýtist í starfi, t.d. í meðferðar-, tómstunda-, íþróttastarfi eða öryggisgæslu.
Góð færni í mannlegum samskiptum.
Frumkvæði, sjálfstæði og skipulag í vinnubrögðum.
Gott líkamlegt atgervi og andlegt heilbrigði.
Gild ökuréttindi.
Einnig er lögð áhersla á aðra persónulega eiginleika, svo sem sveigjanleika, jákvætt viðhorf til skjólstæðinga og áhuga á að starfa með ungmennum.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Við úrvinnslu umsókna um störfin gildir mat Barna- og fjölskyldustofu á hæfni og eiginleikum umsækjenda. Vakin er athygli á að stofnunin aflar sjálf upplýsinga úr sakaskrá áður en viðkomandi hefur störf. Barna- og fjölskyldustofa hvetur öll til að sækja um, óháð kyni.
Með umsóknum skulu fylgja upplýsingar um menntun og fyrri störf. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Allar umsóknir gilda í sex mánuði frá birtingu ef starf losnar að nýju innan þess tíma.
Sameyki Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert. is is
Starfshlutfall er 50-100%
Umsóknarfrestur er til og með 25.06.2026
Nánari upplýsingar veitir
Marta María Ástbjörnsdóttir
Tölvupóstur: marta.maria.astbjornsdottir@bofs.is
Guðfinna Jenný Þorsteinsdóttir
Tölvupóstur: gudfinna.jenny.thorsteinsdottir@bofs.is

Þjónustuaðili
Barna- og fjölskyldustofa
Upplýsingar um starf
Starf
Starf ráðgjafa á meðferðarheimili Esju
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
15.06.2026
Umsóknarfrestur
25.06.2026