
Þjónustuaðili
Fjársýslan
Upplýsingar um starf
Starf
Löggiltur endurskoðandi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
10.04.2026
Umsóknarfrestur
30.04.2026
Löggiltur endurskoðandi
Fjársýslan leggur áherslu á að skapa virði fyrir viðskiptavini og til að mæta auknum kröfum auglýsir Fjársýslan eftir löggiltum endurskoðanda með mikla þekkingu og reynslu af samstæðuuppgjörum til starfa.
Um framtíðarstarf er að ræða í fjölbreyttu og krefjandi umhverfi og felur starfið í sér mánaðar- og ársfjórðungsuppgjör ríkissjóðs og ársuppgjör ríkisaðila í A1-hluta, ráðgjöf til ríkisaðila sem snýr að áætlanagerð, bókhaldi og reikningsskilum auk annarra umbóta- og þróunarverkefna fjármálasviðs. Starfið er kjörið tækifæri fyrir einstakling sem vill takast á við faglegar áskoranir og taka þátt í að þróa reikningsskil ríkisins til framtíðar.
Fjársýsla ríkisins er þjónustu- og þekkingarstofnun á sviði opinberra fjármála og veitir stofnunin ríkisaðilum fjölbreytta, þjónustu og ráðgjöf í umfangsmiklu reikningsskilaumhverfi ríkisins.
Helstu verkefni og ábyrgð
Mánaðar- og ársfjórðungsuppgjör ríkissjóðs og ársuppgjör ríkisaðila í A1-hluta.
Samræming reikningsskila og bókhalds ríkisaðila.
Ráðgjöf til ríkisaðila varðandi áætlanagerð.
Ráðgjöf til ríkisaðila varðandi bókhald, reikningsskil samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðum fyrir opinbera aðila (IPSAS) og ráðgjöf við framkvæmd afstemminga.
Vinna við gerð ríkisreiknings í samræmi við IPSAS.
Umbóta- og þróunarverkefni.
Önnur verkefni í samráði við yfirmann.
Hæfniskröfur
Meistaragráða í endurskoðun og reikningsskilum sem viðurkennd er af endurskoðendaráði samkvæmt lögum um endurskoðendur og endurskoðun nr. 94/2019.
Hefur staðist próf til löggildingar til endurskoðunarstarfa samkvæmt reglugerð 595/2020.
Farsæl reynsla af samstæðuuppgjörum og uppgjörum stórra fyrirtækja.
Þekking á alþjóðlegum reikningsskilastöðlum (IFRS/IPSAS).
Góð greiningarhæfni.
Góð þekking á Excel og upplýsingatækni.
Reynsla af nýtingu gervigreindar er kostur.
Góð kunnátta í íslensku og ensku.
Góð samskiptahæfni, sjálfstæði og öguð vinnubrögð.
Frumkvæði og lausnamiðuð nálgun.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf (hvort tveggja á íslensku) þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda til að gegna starfinu. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.
Um 100% starf er að ræða og við ráðningu í starfið er farið eftir jafnréttisstefnu Fjársýslunnar.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 30.04.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Fjársýslan
Upplýsingar um starf
Starf
Löggiltur endurskoðandi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
10.04.2026
Umsóknarfrestur
30.04.2026