
Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Efstaleiti
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
10.04.2026
Umsóknarfrestur
24.04.2026
Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Efstaleiti
Heilsugæslan Efstleiti auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi í 80-100% tímabundið starf til eins árs. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf1. ágúst nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Á Heilsugæslunni Efstaleiti starfar sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og skemmtilegu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Lögð er áhersla á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu.
Mikil þróunarvinna er í gangi á stöðinni og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við skjólstæðinga. Hjúkrunarfræðingar sinna krefjandi og áhugaverðum verkefnum, margvísleg tækifæri eru til að þróa með sér góða þekkingu og hæfni í starfi.
Ný og spennandi tækifæri eru til starfsþróunar innan HH, þar sem hjúkrunarfræðingum stendur til boða að þróa sig í starfi s.s starfsþróunarár og sérnám í heilsugæsluhjúkrun. Heilsugæslan Efstaleiti leggur áherslu á einstaklingsmiðaða aðlögun og stuðning við nýja starfsmenn.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna inni á island.is/starfatorg
Helstu verkefni og ábyrgð
Megin starfssvið er skólahjúkrun og opin og bókuð móttaka
Skólahjúkrunarfræðingur sinnir reglubundnu heilbrigðiseftirliti nemenda og fræðslu. Auk þess sinnir hann öðrum viðfangsefnum sem upp kunna að koma í samstarfi við annað starfsfólk skólans og foreldra eftir þörfum hverju sinni.
Í móttöku sinna hjúkrunarfræðingar fólki á öllum aldri, bráðaerindum, bókuðum tímum og símaráðgjöf ásamt því að svara Heilsuveruskilaboðum. Í bókaðri móttöku er tekið á móti erindum s.s. ferðamannaheilsuvernd, sárameðferð, lyfjagjöfum ásamt heilsueflandi móttöku.
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Þekking og áhugi á forvarnar- og heilsueflingarstarfi
Reynsla af heilsugæsluhjúkrun kostur
Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
Reynsla og áhugi á teymisvinnu
Reynsla af bráða- og slysamóttöku er kostur
Mikil samskiptahæfni og sveigjanleiki
Íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni framkvæmdastjóra mannauðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir hreinu sakavottorði.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 24.04.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Efstaleiti
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
10.04.2026
Umsóknarfrestur
24.04.2026