
Þjónustuaðili
Háskólinn á Hólum
Upplýsingar um starf
Starf
Kennslustjóri við Háskólann á Hólum
Staðsetning
Norðurland vestra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
10.04.2026
Umsóknarfrestur
27.04.2026
Kennslustjóri við Háskólann á Hólum
Laust er til umsóknar fullt starf kennslustjóra við Háskólann á Hólum. Kennslustjóri tilheyrir stjórnsýslu skólans og vinnur náið með stjórnendum og akademísku starfsfólki ásamt því að vera í miklum samskiptum við nemendur. Kennslustjóri þarf að hafa skýra sýn á þróun kennslumála og háskólastarfs auk þess að hafa hæfileika til að leiða starf kennsluskrifstofu inn í framtíðina með nútímalegum kennsluaðferðum og þverfræðilegri samvinnu.
Fyrir Alþingi liggur frumvarp um breytingar á lögum um opinbera háskóla þar sem m.a. er fjallað um stofnun háskólasamstæðu Háskólans á Hólum og Háskóla Íslands. Kennslustjóri mun koma að þeirri vinnu og gegna mikilvægu hlutverki varðandi framtíð skólastarfs við Háskólann á Hólum. Stofnun háskólasamstæðu er umfangsmikið breytingaverkefni sem felur í sér ýmsar áskoranir tengdar verkefnum kennsluskrifstofu og því þarf kennslustjóri að hafa vilja og getu til að vinna að undirbúningi og innleiðingu háskólasamstæðu og skipulagi kennsluskrifstofu með gæði náms og jákvætt háskólasamfélag í huga.
Við leitum því að öflugum, jákvæðum og framsýnum einstaklingi sem hefur vilja, getu og sýn til að vinna að þróun náms og kennslu við Háskólann á Hólum.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ábyrgð og eftirfylgni með daglegum verkefnum kennsluskrifstofu
Fagleg forysta á kennslutengdum málum og á málefnasviði kennsluskrifstofu
Framþróun kennsluhátta, mælingar og eftirlit með gæðum náms
Ábyrgð og umsjón með námsskrám, nemendabókhaldi og skipulagi náms og kennslu
Ábyrgð á innritun, prófum og brautskráningu nemenda
Samræmd miðlun upplýsinga á vef, í ferlum og reglum
Seta í nefndum og ráðum skólans ásamt því að fylgja eftir ákvörðunum og koma að skýrslugerð
Stuðningur, ráðgjöf og upplýsingamiðlun til nemenda, kennara, stjórnenda og starfsfólks háskólans
Samskipti við ýmsa ytri hagaðila skólans og samstarf við aðra háskóla
Hæfniskröfur
Háskólapróf sem nýtist í starfi, kostur ef viðkomandi hefur einnig lokið meistaraprófi sem tengist starfssviði
Viðbótarmenntun í menntunarfræðum er kostur
Reynsla af skólastarfi er æskileg, sérstaklega á sviði náms og kennslu
Reynsla af því að leiða teymisvinnu
Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni
Góð greiningahæfni og nákvæmni
Skipulagshæfni, sjálfstæði og fagleg vinnubrögð
Góð kunnátta í íslensku og ensku, bæði í rituðu og töluðu máli
Reynsla af vinnu við náms- og kennslukerfi s.s. Uglu, Canvas og Inspera er kostur
Góð almenn tölvukunnátta með áherslu á Microsoft 365 og skýjalausnir ásamt því að hafa áhuga á að tileinka sér og innleiða nýjungar m.a. á sviði gervigreindar
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga um opinbera háskóla nr. 85/2008. Um starfskjör, réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni, á íslensku og í pdf formi:
Starfsferilskrá
Afrit af prófskírteinum
Kynningarbréf, þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfylli þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins.
Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum.
Starfsstöð kennslustjóra er bæði á Hólum í Hjaltadal og á Sauðárkróki. Háskólinn aðstoðar við að finna húsnæði í Skagafirði ef þess er þörf.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 27.04.2026
Nánari upplýsingar veitir
Sigríður Huld Jónsdóttir
Verkefnastjóri Háskóla Íslands og Háskólans á Hólum
Tölvupóstur: sigridurhuld@holar.is

Þjónustuaðili
Háskólinn á Hólum
Upplýsingar um starf
Starf
Kennslustjóri við Háskólann á Hólum
Staðsetning
Norðurland vestra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
10.04.2026
Umsóknarfrestur
27.04.2026