
Þjónustuaðili
Verkmenntaskólinn á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Kennari í vélstjórnargreinum
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
09.04.2026
Umsóknarfrestur
20.04.2026
Kennari í vélstjórnargreinum
Verkmenntaskólinn á Akureyri auglýsir stöðu kennara í vélstjórnar- og skyldum greinum lausa til umsóknar. Leitað er að einstaklingi sem skorar hátt á sviði samskipta, hefur áhuga á fjölbreyttri kennslu og fellur vel að aðstæðum og þörfum skólans.Um er að ræða 100% stöðu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Kennslugreinar eru faggreinar í vélstjórn og málmiðngreinum.
Kennari kennir og undirbýr kennslu, hefur faglegt samstarf og metur nám í kennslugrein sinni samkvæmt markmiðum aðal- og skólanámskrár, gerir námsáætlun, viðheldur faglegri hæfni sinni og hugar að tengslum við aðrar námsgreinar. Tekur þátt í samráði vegna starfs síns, ber ábyrgð á almennri upplýsingagjöf til nemenda og forráðamanna, situr fundi og vinnur önnur störf sem honum eru falin og samrýmast gildandi kjarasamningum, lögum og reglugerðum.
Kennari vinnur eftir vottuðu gæðakerfi VMA.
Hæfniskröfur
Vélfræðingur (D-réttindi vélstjórnar) er skilyrði, kostur að viðkomandi hafi háskólamenntun á sviði verk- eða tæknifræðigreina.
Kennsluréttindi eða í kennsluréttindanámi.
Kennslureynsla á framhaldsskólastigi æskileg.
Kostur ef viðkomandi hefur lokið námi í rafvirkjun fyrir vélfræðinga.
Þekking og reynsla af málmiðngreinum kostur.
Hafi skipulagshæfileika, sýni frumkvæði, árvekni og þjónustulund.
Góð almenn tölvukunnátta og hæfni í notkun upplýsingatækni
Þekking á notkun tölvustýrðra véla er kostur.
Frumkvæði, sveigjanleiki, öguð vinnubrögð og jákvætt hugarfar. Mjög góð hæfni í samskiptum og ríkur samstarfsvilji.
Hafi áhuga á að vinna með ungu fólki.
Hæfni í íslensku í ræðu og riti.
Þekking og hæfni til að kenna aðrar tæknigreinar, stærðfræði og raungreinar er mikill kostur.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.
Umsóknum skal skila rafrænt í gegnum Starfatorg (www.starfatorg.is) með tilheyrandi gögnum, þar skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt afriti af prófskírteinum og leyfisbréfum. Umsækjendur sendi jafnframt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og sýn viðkomandi á sjálfum sér sem kennara ásamt rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Sé umsækjandi í kennsluréttindanámi skal yfirlit yfir námsframvindu fylgja með umsókn ásamt staðfestingu frá háskóla á umsókn um kennsluréttindanám fyrir næsta skólaár.
Í samræmi við jafnréttisáætlun skólans er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um starfið.
Áskilinn er réttur til að nýta auglýsinguna í 6 mánuði frá ráðningu.Ákvörðun um ráðningu byggir á innsendum gögnum og viðtölum. Við ráðningu verður horft til þess að sá sem starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum deildar og sviðs. Ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2026. Föst starfsstöð er Verkmenntaskólinn á Akureyri, Hringteigi 2.
Tekið skal fram að skv. 4. mgr. 8. gr. laga framhaldsskóla nr. 92/2008 er óheimilt að ráða einstakling til starfa við framhaldsskóla sem hlotið hefur refsidóm fyrir brot á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga. Umsækjandi þarf að skila inn sakavottorði með umsókn.
Verkmenntaskólinn á Akureyri hefur fengið ISO-9001 gæðavottun. Nánari upplýsingar um skólann eru á heimasíðu hans vma.is. Frekari upplýsingar veita skólameistari og aðstoðarskólameistari.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 20.04.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Verkmenntaskólinn á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Kennari í vélstjórnargreinum
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
09.04.2026
Umsóknarfrestur
20.04.2026