Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Embætti landlæknis

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur viðbragðsáætlana hjá sóttvarnalækni

Staðsetning

Óstaðbundið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

08.04.2026

Umsóknarfrestur

04.05.2026

Sérfræðingur viðbragðsáætlana hjá sóttvarnalækni

Embætti landlæknis óskar eftir að ráða sérfræðing til starfa á sóttvarnasviði með áherslu á viðbúnað, gerð viðbragðsáætlana og æfinga þeirra auk eftirárýni viðbragða.

Í boði er fjölbreytt, áhugavert og krefjandi starf þar sem reynir á frumkvæði, fagmennsku og samskiptafærni. Næsti yfirmaður er sóttvarnalæknir en viðkomandi vinnur í nánu samstarfi við aðra sérfræðinga sóttvarnasviðs og embættisins, sem og sérfræðinga almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra. Starfið er laust frá og með 01.09.2026.

Sóttvarnalæknir starfar í samræmi við sóttvarnalög nr.19/1997. Verkefni sóttvarnalæknis lúta fyrst og fremst sóttvörnum varðandi sjúkdóma sem valdið geta farsóttum, öðrum alvarlegum smitsjúkdómum sem geta ógnað almannaheill og einnig alvarlegum heilsufarslegum afleiðingum eiturefna og geislavirkra efna. Lögin taka einnig til óvenjulegra og óvæntra atburða sem geta haft alvarlegar heilsufarslegar afleiðingar meðal þjóða heims.

Sóttvarnalæknir skipuleggur og samræmir sóttvarnir á landsvísu, m.a. með útgáfu leiðbeininga um viðbrögð við farsóttum. Sóttvarnalæknir skal vera heilbrigðisstarfsmönnum, og öðrum sem við sóttvarnir fást, til ráðgjafar og veita upplýsingar og fræðslu um forvarnir gegn smitsjúkdómum til almennings. Þá skal sóttvarnalæknir hafa umsjón með afhendingu, dreifingu og notkun öryggisbirgða lyfja, sem kveðið er á um í reglugerð, og annars nauðsynlegs búnaðar í landinu til að bregðast við heilbrigðisógnum á borð við farsóttir.

Nánar um verkefni sóttvarnalæknis má sjá á heimasíðu embættis landlæknis:

https://island.is/s/landlaeknir/embaetti-landlaeknis

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Gerð og endurskoðun viðbragðsáætlana í samstarfi við almannavarnadeild ríkislögreglustjóra

  • Skipulagning og framkvæmd æfinga viðbragða auk eftirárýni

  • Samskipti við innlenda og erlenda samstarfsaðila um viðbúnað og viðbrögð þ.m.t. alþjóðastofnanir

  • Sinnir málefnum öryggisbirgða sóttvarnalæknis

  • Hefur hlutverk í viðbrögðum almannavarna og sóttvarnalæknis

  • Sinnir upplýsingamiðlun, vinnur að gerð leiðbeininga og tekur þátt í uppbyggingu á vefsíðu embættis landlæknis

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun er skilyrði. Heilbrigðismenntun er æskileg og framhaldsmenntun er kostur

  • Reynsla í gerð viðbragðsáætlana æskileg

  • Almenn góð tölvukunnátta og þekking á ritvinnslu skilyrði; grunnþekking á gagnavinnslu er kostur

  • Samvinnufús og sveigjanleiki í daglegum störfum

  • Þekking og reynsla af verkefnastjórnun er æskileg

  • Reynsla og þekking á starfsemi almannavarna er kostur

  • Starfsreynsla í heilbrigðisþjónustu og á sviði stjórnsýslu er kostur

  • Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli er skilyrði

  • Frumkvæði, skipulagshæfni, samskiptahæfileikar, þjónustulund

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Við ráðningu er tekið mið af jafnréttisstefnu embættisins og við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum til að sækja um starfið. Umsóknin gildir í sex mánuði eftir að umsóknarfrestur rennur út nema umsækjandi ákveði annað. Embætti landlæknis áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá, auk 1 bls. kynningarbréfs þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Mat á hæfni umsækjenda byggir á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Eingöngu er tekið við umsóknum rafrænt í gegnum vefgátt Starfatorgs.

Embætti landlæknis starfar í samræmi við lög um landlækni og lýðheilsu. Hlutverk embættisins í hnotskurn er að stuðla að góðri og öruggri heilbrigðisþjónustu, heilsueflingu og öflugum forvörnum. Embættið hefur sett sér þrjú gildi sem starfsmönnum ber að hafa að leiðarljósi þ.e. ábyrgð, virðing og traust. Við erum heilsueflandi vinnustaður sem leggur áherslu á að efla mannauð og stuðla að góðri heilsu og líðan starfsmanna.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 04.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Guðrún Aspelund

sóttvarnalæknir

Tölvupóstur: gudruna@landlaeknir.is

Sími: 510-1900

Þórgunnur Hjaltadóttir

mannauðsstjóri

Tölvupóstur: thorgunnur@landlaeknir.is

Þjónustuaðili

Embætti landlæknis

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur viðbragðsáætlana hjá sóttvarnalækni

Staðsetning

Óstaðbundið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

08.04.2026

Umsóknarfrestur

04.05.2026