Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur við umsjón útskrifta á brotaendurhæfingardeild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

09.04.2026

Umsóknarfrestur

20.04.2026

Hjúkrunarfræðingur við umsjón útskrifta á brotaendurhæfingardeild

Við leitum að hjúkrunarfræðingi til starfa við skipulag og samhæfingu útskrifta sjúklinga á brotaendurhæfingardeild L1 á Landakoti sem er staðsett í hjarta Reykjavíkur, í fallegu og friðsælu umhverfi. Á deildinni dvelja sjúklingar sem þurfa styttri endurhæfingu eftir beinbrot, með það að markmiði að endurheimta færni og sjálfstæði og útskrifast heim.

Um er að ræða dagvinnu á virkum dögum, starfshlutfall 80-100%, með möguleika á sveigjanlegum vinnutíma samkvæmt samkomulagi. Starfið er laust frá 1. maí 2026 eða eftir nánara samkomulagi. Einnig er möguleiki á lægra starfshlutfalli samhliða vaktavinnu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Skipulag og umsjón með árangursríkum útskriftum sjúklinga í samstarfi við fjölskyldur, aðra fagaðila og stofnanir

  • Tryggja að hjúkrunargögn, lyfjalistar og áætlanir séu rétt og uppfærð við útskrift

  • Fræða sjúklinga og aðstandendur um meðferð, lyf, endurhæfingu og eftirfylgd

  • Taka þátt í þróun og umbótum á útskriftarferlum og verklagi

  • Fylgja verklagsreglum Landspítala og stuðla að gæðum og öryggi þjónustunnar

Hæfniskröfur

  • Gilt íslenskt starfsleyfi sem hjúkrunarfræðingur

  • Reynsla af klínísku starfi æskileg, helst á endurhæfingu, bráðaþjónustu eða öldrunarlækningum

  • Góð samskipta- og samstarfshæfni

  • Skipulagshæfni, sjálfstæði og fagleg vinnubrögð

  • Góð íslenskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, útskriftir, endurhæfing

Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 3/5

Staðsetning: Túngata, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 20.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Camille Justine Geraldo

Tölvupóstur: camillej@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur við umsjón útskrifta á brotaendurhæfingardeild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

09.04.2026

Umsóknarfrestur

20.04.2026