Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Villtu vera á skrá? Hjúkrunarfræðingur með starfsleyfi
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
01.01.2026
Umsóknarfrestur
30.12.2026
Villtu vera á skrá? Hjúkrunarfræðingur með starfsleyfi
Komdu í lið með okkur!
Við erum alltaf til í að bæta við okkur öflugu og frábæru fólki á Sjúkrahúsið á Akureyri.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir almenna og sérhæfða heilbrigðisþjónustu þar sem áhersla er lögð á bráðaþjónustu og helstu sérgreinameðferðir. SAk er annað tveggja sérgreina sjúkrahúsa landsins og gegnir lykilhlutverki í almannavörnum. Vilt þú taka þátt í okkar vegferð?
Hér getur þú lagt inn umsókn um tímabundið starf. Ath. allar ótímabundnar stöður eru auglýstar og þarf að sækja um þær sérstaklega.
Umsækjendum verður ekki svarað sérstaklega en ráðningaraðilar munu hafa samband við umsækjendur eftir því sem tilefni er til.
Ef einhverjar spurningar endilega sendið tölvupóst á Kristjönu Kristjánsdóttur deildarstjóra mannauðsdeildar á netfangið kristjanak@sak.is
Helstu verkefni og ábyrgð
Skipuleggja, skrá og veita hjúkrunarmeðferð
Veita markvissa fræðslu til sjúklinga og aðstandenda
Þáttaka í þverfaglegri teymisvinnu
Þáttaka og innleiðing nýjunga innan hjúkrunar
Unnið sé samkvæmt markmiðum hjúkrunar, deildarinnar og stofnunarinnar
Hæfniskröfur
Fullgilt hjúkrunarpróf og íslenskt starfsleyfi
Faglegur metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
Jákvætt viðhorf, frumkvæði og góðir samskiptahæfileikar
Hæfni og vilji til að vinna í teymi
Íslenskukunnátta
Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu
Hreint sakavottorð
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsóknum skal fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt prófskírteinum og starfsleyfi. Upphafsdagur sem og starfshlutfall er samkomulag.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi.Áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru: ÖRYGGI SAMVINNA FRAMSÆKNI
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 30.12.2026
Nánari upplýsingar veitir
Kristjana Kristjánsdóttir
Tölvupóstur: kristjanak@sak.is
Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Villtu vera á skrá? Hjúkrunarfræðingur með starfsleyfi
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
01.01.2026
Umsóknarfrestur
30.12.2026