Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Gagnasérfræðingur við þróun vöruhúss gagna

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

04.06.2026

Umsóknarfrestur

15.06.2026

Gagnasérfræðingur við þróun vöruhúss gagna

Laust er til umsóknar fullt starf gagnasérfræðings hjá upplýsingatæknisviði Háskóla Íslands. Starfið tengist þróun vöruhúss gagna fyrir Háskóla Íslands sem og aðra íslenska háskóla.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Hönnun og smíði gagnahúss: Uppsetning á gagnaskipan (Star Schema, Snowflake) sem hentar þörfum rekstursins

  • Smíði og þróun ETL/ELT ferla til að sækja, hreinsa og hlaða gögnum úr fjölbreyttum upprunakerfum (t.d. ERP, CRM, vefkerfi)

  • Skýrslugerð sem felst m.a. í hönnun á mælaborðum (dashboards) sem veita stjórnendum og starfsmönnum innsýn í reksturinn á rauntíma

  • Gæðaeftirlit sem m.a. felst í að tryggja að gögn séu rétt og að öryggi þeirra sé í fyrirrúmi

  • Ráðgjöf og aðstoð við deildir við að skilgreina sína lykilmælikvarða (KPIs) og koma þeim í myndrænt form

Hæfniskröfur

  • Grunngráða í hugbúnaðarverkfræði eða skyldum greinum

  • Reynsla af hönnun og þróun gagnavöruhúsa

  • Þekking á gagnalíkönum (t.d. Star Schema, Snowflake) eða sambærileg reynsla af uppbyggingu gagnainnviða

  • Reynsla af vinnu í PowerBI

  • Þekking á Postgresql

  • Reynsla af stjórnun gagnaverkefna frá hönnun til innleiðingar

  • Þjónustulund og samskiptahæfni

  • Góð íslensku- og enskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  1. Ferilskrá

  2. Kynningarbréf þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins

  3. Afrit af prófskírteinum

  4. Upplýsingar um umsagnaraðila

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi. 36 stunda vinnuvika hefur verið innleidd í stjórnsýslustörfum skólans.

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 15.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Guðmundur H Kjærnested

Tölvupóstur: ghkjaerne@hi.is

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Gagnasérfræðingur við þróun vöruhúss gagna

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

04.06.2026

Umsóknarfrestur

15.06.2026