Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Doktorsnemi í Horizon Europe og THCS Verkefni - Straumlínustjórnun í heilbrigðiskerfi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

31.03.2026

Umsóknarfrestur

24.04.2026

Doktorsnemi í Horizon Europe og THCS Verkefni - Straumlínustjórnun í heilbrigðiskerfi

Laust er til umsóknar fullt starf doktorsnema við iðnaðarverkfræðideild Háskóla Íslands. Starfið er til þriggja ára og er hluti af þverfaglegu verkefni, MUSCLE, þar sem doktorsneminn mun læra og þróa færni í beitingu straumlínustjórnunar, ferlagreiningar og gagnaúrvinnslu innan heilbrigðiskerfisins (e. Lean Healthcare).

Verkefnið MUSCLE er styrkt af Horizon Europe - THCS Partnership ogmarkáætlun (#THCS2025-361). Markmið verkefnisins er að umbreyta meðferðarferlum við stoðkerfissjúkdóma með því að beita Lean Healthcare - aðferðum til að draga úr sóun, einfalda verkferla og efla sjúklingamiðaða þjónustu sem og bæta nýtingu heilbrigðisauðlinda.

Doktorsneminn mun starfa með rannsakendum MUSCLE-verkefnisins sem koma frá Háskóla Íslands, íslenska heilbrigðiskerfinu, háskólanum í Skövde (Svíþjóð), sænska heilbrigðiskerfinu, háskólanum í Mondragón (Spáni), spænska heilbrigðiskerfinu og Heilbrigðisráðuneyti Möltu. Íslenski hluti verkefnisins felur í sér ferlagreiningu og úrvinnslu heilbrigðisgagna sem styðja markmið MUSCLE, auk kortlagningu stafrænna lausna. Starfið felur í sér heimsóknir til samstarfsaðila í Svíþjóð, Spáni og Möltu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Greining á ferlum ákveðinna stoðkerfissjúkdóma í gegnum íslenska heilbrigðiskerfið

  • Kortlagning á tæknilausnum sem styðja ferli við meðferð stoðkerfissjúkdóma

  • Þátttaka í rannsóknarvinnu í samstarfi við leiðbeinanda

  • Þátttaka í alþjóðlegu þjálfunar- og tengslanetstarfi innan verkefnisins

Hæfniskröfur

  • Meistaragráða (120 ECTS) í verkfræði eða skyldum greinum, eða sambærileg gráða á jafnvirku akademísku stigi. Umsækjandi skal hafa lokið prófi þegar starf hefst.

  • Reynsla af annað hvort ferlagreiningum í iðnaðarverkfræði eða þekkingu af heilbrigðiskerfinu, kostur ef viðkomandi hefur bæði.

  • Góð enskukunnátta og kunnátta í norrænu máli, bæði í ræðu og riti.

  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.

  • Reynsla af verkefnum sem fjármögnuð eru af ESB eða öðrum alþjóðlegum samstarfsverkefnum er kostur.

  • Samstarfshæfni og áhugi á að stuðla að jákvæðu, inngildandi og þekkingardrifnu rannsóknarumhverfi.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  • Ferilskrá

  • Kynningarbréf þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins

  • Afrit af prófskírteinum

  • Upplýsingar um umsagnaraðila

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af Jafnréttisáætlun Háskóli Íslands. Vakin er athygli á Málstefna Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi. Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi. 36 stunda vinnuvika hefur verið innleidd í stjórnsýslustörfum skólans.

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið og deildir.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 24.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Guðmundur Valur Oddsson

Tölvupóstur: gvo@hi.is

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Doktorsnemi í Horizon Europe og THCS Verkefni - Straumlínustjórnun í heilbrigðiskerfi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

31.03.2026

Umsóknarfrestur

24.04.2026