Þjónustuaðili
Embætti landlæknis
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur sýkingavarna hjá sóttvarnalækni
Staðsetning
Óstaðbundið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
08.04.2026
Umsóknarfrestur
04.05.2026
Sérfræðingur sýkingavarna hjá sóttvarnalækni
Embætti landlæknis óskar eftir að ráða sérfræðing til starfa á sóttvarnasviði með áherslu á sýkingavarnir og málefni öryggisbirgða sbr. sóttvarnalög.
Í boði er fjölbreytt, áhugavert og krefjandi starf þar sem reynir á frumkvæði, fagmennsku og samskiptafærni. Næsti yfirmaður er sóttvarnalæknir en viðkomandi vinnur í nánu samstarfi við aðra sérfræðinga sóttvarnasviðs, sem og aðra sérfræðinga innan og utan embættisins. Starfið er laust frá og með 01.09.2026.
Sóttvarnalæknir starfar í samræmi við sóttvarnalög nr.19/1997. Verkefni sóttvarnalæknis lúta fyrst og fremst sóttvörnum varðandi sjúkdóma sem valdið geta farsóttum, öðrum alvarlegum smitsjúkdómum sem geta ógnað almannaheill og einnig alvarlegum heilsufarslegum afleiðingum eiturefna og geislavirkra efna. Lögin taka einnig til óvenjulegra og óvæntra atburða sem geta haft alvarlegar heilsufarslegar afleiðingar meðal þjóða heims.
Sóttvarnalæknir skipuleggur og samræmir sóttvarnir á landsvísu, m.a. með útgáfu leiðbeininga um viðbrögð við farsóttum. Sóttvarnalæknir skal vera heilbrigðisstarfsmönnum, og öðrum sem við sóttvarnir fást, til ráðgjafar og veita upplýsingar og fræðslu um forvarnir gegn smitsjúkdómum til almennings. Þá skal sóttvarnalæknir hafa umsjón með afhendingu, dreifingu og notkun öryggisbirgða lyfja, sem kveðið er á um í reglugerð, og annars nauðsynlegs búnaðar í landinu til að bregðast við heilbrigðisógnum á borð við farsóttir.
Nánar um verkefni sóttvarnalæknis má sjá á heimasíðu embættis landlæknis:
Helstu verkefni og ábyrgð
Vinnur að sýkingavörnum og samhæfingu þeirra á landsvísu
Sér um ráðgjöf, fræðslu og gerð leiðbeininga um sýkingavarnir m.a. fyrir almenning og heilbrigðisstarfsmenn
Sinnir upplýsingamiðlun og fræðslu til almennings um forvarnir gegn smitsjúkdómum
Hefur umsjón með málefnum öryggisbirgða sóttvarnalæknis
Sinnir smitrakningu sem kallar á aðkomu sóttvarnalæknis, með öðrum aðilum.
Er landstengiliður sýkingavarnastarfs við Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina WHO f.h. sóttvarnalæknis
Sinnir málefnum varðandi matarbornar hópsýkingar og sýkingum tengdum heilbrigðisþjónustu
Tekur þátt í gerð viðbragðsáætlana
Hæfniskröfur
Heilbrigðismenntun á háskólastigi er skilyrði; menntun í hjúkrunarfræði eða lýðheilsuvísindum er æskileg, framhaldsmenntun er kostur
Starfsreynsla í heilbrigðisþjónustu er nauðsynleg; þekking og reynsla af sýkingavörnum er kostur
Þekking og reynsla af verkefnastjórnun er æskileg
Þekking og reynsla af umsýslu vegna birgðahalds fyrir heilbrigðisþjónustu er kostur
Almenn góð tölvukunnátta og þekking á ritvinnslu skilyrði; grunnþekking á gagnavinnslu er kostur
Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli er skilyrði
Frumkvæði, skipulagshæfni, samskiptahæfileikar, þjónustulund
Samvinnufús og sveigjanleiki í daglegum störfum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Við ráðningu er tekið mið af jafnréttisstefnu embættisins og við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum til að sækja um starfið. Umsóknin gildir í sex mánuði eftir að umsóknarfrestur rennur út nema umsækjandi ákveði annað. Embætti landlæknis áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá, auk 1 bls. kynningarbréfs þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Mat á hæfni umsækjenda byggir á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Eingöngu er tekið við umsóknum rafrænt í gegnum vefgátt Starfatorgs.
Embætti landlæknis starfar í samræmi við lög um landlækni og lýðheilsu. Hlutverk embættisins í hnotskurn er að stuðla að góðri og öruggri heilbrigðisþjónustu, heilsueflingu og öflugum forvörnum. Embættið hefur sett sér þrjú gildi sem starfsmönnum ber að hafa að leiðarljósi þ.e. ábyrgð, virðing og traust. Við erum heilsueflandi vinnustaður sem leggur áherslu á að efla mannauð og stuðla að góðri heilsu og líðan starfsmanna.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 04.05.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þórgunnur Hjaltadóttir
Mannauðsstjóri
Tölvupóstur: thorgunnur.hjaltadottir@landlaeknir.is
Sími: 510-1900
Þjónustuaðili
Embætti landlæknis
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur sýkingavarna hjá sóttvarnalækni
Staðsetning
Óstaðbundið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
08.04.2026
Umsóknarfrestur
04.05.2026