Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Bílstjóri óskast í flutningaþjónustu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

30.06.2026

Umsóknarfrestur

10.07.2026

Bílstjóri óskast í flutningaþjónustu

Aðfangaþjónusta Landspítala leitar að ábyrgum og þjónustulunduðum bílstjóra til starfa í flutningaþjónustu. Um er að ræða 100% framtíðarstarf í dagvinnu þar sem unnið er frá kl. 8:00-17:00, fjóra daga vikunnar. Starfsstöð er við Hringbraut eða í Fossvogi. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.

Starfið felst í akstri Landspítalaskutlunnar (9 manna bíll) á milli starfsstöðva spítalans samkvæmt fastri áætlun. Einstaklingur sem sækir um þarf að hafa bílpróf og vera tilbúinn að sinna akstri allan vinnudaginn. Landspítalaskutlan flytur starfsfólk Landspítala, sjúklinga, sýni, blóð, lyf og annað á milli starfsstöðva.

Leitað er að jákvæðum og ábyrgum einstaklingi sem býr yfir lipurð í mannlegum samskiptum, stundvísi og heiðarleika.

Flutningaþjónusta er hluti af Aðfangaþjónustu Landspítala. Starfsfólk þjónustunnar vinnur náið með öðrum starfseiningum og tryggir örugga og skilvirka flutninga innan spítalans og milli starfsstöðva.

Starfsfólk flutningaþjónustu heyrir undir teymisstjóra sem er ábyrgur fyrir því að starfsemin gangi skilvirkt fyrir sig eftir settum markmiðum. Aðfangaþjónusta Landspítala sinnir einnig vöruþjónustu, þvottaþjónustu og deildaþjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Aka Landspítalaskutlunni á milli starfsstöðva

  • Annast samskipti í gegnum síma varðandi tilfallandi breytingar á akstursplani

  • Sjá um daglega umhirðu og regluleg þrif bílsins

  • Flytja sjúklinga, sýni, blóðeiningar, vörur o.fl. milli starfsstöðva

  • Önnur tilfallandi verkefni skv. þjónustusamningum

Hæfniskröfur

  • Bílpróf, góð ökuhæfni og aksturshegðun

  • Hæfni til að vinna skipulega og fylgja tímaáætlun

  • Stundvísi og ábyrgð í starfi

  • Jákvætt og lausnamiðað viðhorf

  • Sjálfstæð vinnubrögð og geta til að starfa í teymi

  • Þjónustulund, metnaður og frumkvæði

  • Góðir samskiptahæfileikar

  • Góð íslenskukunnátta kostur

  • Reynsla af þjónustustarfi eða akstursstarfi kostur

  • Menntun sem nýtist í starfi kostur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Tungumálahæfni: íslenska: 3/5, enska 3/5

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, flutningaþjónusta, bílstjóri

Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 10.07.2026

Nánari upplýsingar veitir

Birna Kristín Hrafnsdóttir

Tölvupóstur: birnakhr@landspitali.is

Eva Rún Arnarsdóttir

Tölvupóstur: evara@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Bílstjóri óskast í flutningaþjónustu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

30.06.2026

Umsóknarfrestur

10.07.2026