Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur á dagdeild lyflækninga

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

14.07.2026

Umsóknarfrestur

24.07.2026

Hjúkrunarfræðingur á dagdeild lyflækninga

Ertu góður liðsmaður og langar þig að starfa í fjölbreyttu og lærdómsríku starfsumhverfi?

Við leitum að hjúkrunarfræðingum í okkar góða lið á dagdeild Sjúkrahússins á Akureyri. Hér eru mikil tækifæri til að þróa með sér mikla faglega þekkingu og hæfni í sjálfstæðum vinnubrögðum. Staðan er laus nú þegar.

Starfið er tilvalið fyrir nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga sem og hjúkrunarfræðinga sem vilja breyta til í starfi og takast á við nýjar áskoranir í fjölbreyttu, krefjandi og góðu starfsumhverfi undir handleiðslu reyndra hjúkrunarfræðinga.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ábyrgð á öllum verkefnum hjúkrunarfræðinga samkvæmt lögum og reglugerðum

  • Unnið samkvæmt markmiðum hjúkrunar, deildarinnar og stofnunarinnar

  • Skipuleggja og veita hjúkrunarmeðferð

  • Veita fræðslu til sjúklinga og aðstandenda

  • Þáttaka í þverfaglegri teymisvinnu

  • Þátttaka í þróun á starfsemi deildar

Hæfniskröfur

  • Umsækjandi skal hafa lokið hjúkrunarfræðinámi frá viðurkenndri stofnun

  • Gilt íslenskt starfsleyfi

  • Reynsla á sviði blóð- og krabbameinslyfjameðferða er kostur

  • Lögð er áhersla á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hæfileika í samskiptum og samvinnu

  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu

  • Hreint sakavottorð

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.

Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.

Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 24.07.2026

Nánari upplýsingar veitir

Inga Margrét Skúlad. Langdal

deildarstjóri

Tölvupóstur: inga@sak.is

Sími: 463-0100

Kristjana Kristjánsdóttir

deildarstjóri mannauðsdeildar

Tölvupóstur: kristjanak@sak.is

Sími: 463-0100

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur á dagdeild lyflækninga

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

14.07.2026

Umsóknarfrestur

24.07.2026