Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Austur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur - Egilsstaðir - Hjúkrunarheimilið Dyngja - Framtíðarstarf

Staðsetning

Austurland

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

07.01.2026

Umsóknarfrestur

03.06.2026

Hjúkrunarfræðingur - Egilsstaðir - Hjúkrunarheimilið Dyngja - Framtíðarstarf

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðinga á Hjúkrunarheimilið Dyngju. Starfshlutfall er 80-100% eða samkvæmt samkomulagi. Um framtíðarstarf er að ræða. Fyrir aðflutta er möguleiki á aðstoð við húsnæði og flutningsstyrk.

Helstu verkefni og ábyrgð

Fagleg vinna hjúkrunarfræðings á hjúkrunarheimili.

Hæfniskröfur

Íslenskt hjúkrunarleyfi er skilyrði. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar fjórtán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu enda slagorð stofnunarinnar, samvinna um velferð.

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 03.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Bríet Magnúsdóttir

Tölvupóstur: briet.magnusdottir@hsa.is

Sími: 470-3040

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Austur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur - Egilsstaðir - Hjúkrunarheimilið Dyngja - Framtíðarstarf

Staðsetning

Austurland

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

07.01.2026

Umsóknarfrestur

03.06.2026