Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Viltu vera á skrá? Ljósmóðurnemi/Hjúkrunarfræðingur
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
20-100%
Starf skráð
01.01.2026
Umsóknarfrestur
30.12.2026
Viltu vera á skrá? Ljósmóðurnemi/Hjúkrunarfræðingur
Komdu í lið með okkur!
Við erum alltaf til í að bæta við okkur öflugu og frábæru fólki á Sjúkrahúsið á Akureyri.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir almenna og sérhæfða heilbrigðisþjónustu þar sem áhersla er lögð á bráðaþjónustu og helstu sérgreinameðferðir. SAk er annað tveggja sérgreina sjúkrahúsa landsins og gegnir lykilhlutverki í almannavörnum. Vilt þú taka þátt í okkar vegferð?
Hér getur þú lagt inn umsókn um tímabundið ráðningarstarf. Ath. allar ótímabundnar stöður eru auglýstar og þarf að sækja um þær sérstaklega.
Umsækjendum verður ekki svarað sérstaklega en ráðningaraðilar munu hafa samband við umsækjendur eftir því sem tilefni er til.
Ef einhverjar spurningar endilega sendið tölvupóst á Kristjönu Kristjánsdóttur deildarstjóra mannauðsdeildar á netfangið kristjanak@sak.is
Helstu verkefni og ábyrgð
Hlutverk og ábyrgð er í samræmi við starfslýsingar ljósmóðurnema eftir lengd náms
Unnið sé samkvæmt markmiðum hjúkrunar, deildarinnar og stofnunarinnar
Hæfniskröfur
Ljósmóðurnemi á 1.-2. ári
Fullgilt hjúkrunarpróf og íslenskt starfsleyfi
Lögð er áhersla á frumkvæði, jákvætt viðhorf, sjálfstæð vinnubrögð og hæfileika í samskiptum og samvinnu
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsóknum skal fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt prófskírteinum og starfsleyfi.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi.Áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru: ÖRYGGI SAMVINNA FRAMSÆKNI
Starfshlutfall er 20-100%
Umsóknarfrestur er til og með 30.12.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Viltu vera á skrá? Ljósmóðurnemi/Hjúkrunarfræðingur
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
20-100%
Starf skráð
01.01.2026
Umsóknarfrestur
30.12.2026