Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Viltu vera á skrá? Lífeindafræðingur

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

01.01.2026

Umsóknarfrestur

30.12.2026

Viltu vera á skrá? Lífeindafræðingur

Komdu í lið með okkur!

Við erum alltaf til í að bæta við okkur öflugu og frábæru fólki á Sjúkrahúsið á Akureyri.

Sjúkrahúsið á Akureyri veitir almenna og sérhæfða heilbrigðisþjónustu þar sem áhersla er lögð á bráðaþjónustu og helstu sérgreinameðferðir. SAk er annað tveggja sérgreina sjúkrahúsa landsins og gegnir lykilhlutverki í almannavörnum. Vilt þú taka þátt í okkar vegferð?

Hér getur þú lagt inn umsókn um tímabundið ráðningarstarf. Ath. allar ótímabundnar stöður eru auglýstar og þarf að sækja um þær sérstaklega.

Umsækjendum verður ekki svarað sérstaklega en ráðningaraðilar munu hafa samband við umsækjendur eftir því sem tilefni er til.

Ef einhverjar spurningar endilega sendið tölvupóst á Kristjönu Kristjánsdóttur deildarstjóra mannauðsdeildar á netfangið kristjanak@sak.is

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Í starfinu felst ábyrgð á öllum almennum verkefnum lífeindafræðings samkvæmt lögum og reglugerðum

  • Einnig að unnið sé samkvæmt markmiðum deildarinnar og stofnunarinnar

Hæfniskröfur

  • Umsækjandi skal hafa fullgilt próf og starfsleyfi

  • Sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Jákvætt viðhorf, frumkvæði og góðir samskiptahæfileikar

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag lífeindafræðinga hafa gert.

Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt prófskírteinum og starfsleyfi.

Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi.Áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.

Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru: ÖRYGGI SAMVINNA FRAMSÆKNI

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 30.12.2026

Nánari upplýsingar veitir

Inga Stella Pétursdóttir

Tölvupóstur: ingastella@sak.is

Sími: 463-0100

Kristjana Kristjánsdóttir

Tölvupóstur: kristjanak@sak.is

Sími: 463-0100

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Viltu vera á skrá? Lífeindafræðingur

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

01.01.2026

Umsóknarfrestur

30.12.2026