Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Geðhjúkrunarfræðingur - Geðheilsuteymi - Heilbrigðisstofnun Austurlands
Staðsetning
Austurland
Starfshlutfall
-100%
Starf skráð
22.12.2025
Umsóknarfrestur
09.01.2026
Geðhjúkrunarfræðingur - Geðheilsuteymi - Heilbrigðisstofnun Austurlands
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða til starfa geðhjúkrunarfræðing í geðheilsuteymi stofnunarinnar. Unnið er í dagvinnu þvert á starfsstöðvar HSA og er starfshlutfall 100% eða samkvæmt samkomulagi. Staðan veitist frá 1. febrúar 2026 eða eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Klínsík meðferðarvinna innan 2. línu geðheilsuteymis HSA.
HAM meðferð, styðjandi samtalsmeðferð, áhugahvetjandi samtöl og lausnamiðaðar nálganir.
Matsviðtöl með geðskoðun og mati á þjónustuþörf.
Ráðgjöf, fræðsla og stuðnings-og forvarnarviðtöl.
Skipuleggja og veita þjónustu sem þörf er á hverju sinni.
Þátttaka í skipulagningu og þróun geðheilbrigðisþjónustu innan Geðheilsuteymis HSA á Austurlandi í samvinnu við yfirsálfræðing og yfirgeðlækni.
Staðsetning starfs getur verið sveigjanleg.
Hæfniskröfur
Heilbrigðismenntun á sviði geðhjúkrunar. Hæfni og áhugi á teymis- og verkefnavinnu. Góð samskiptahæfni og jákvætt viðhorf. Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi. Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun. Góð almenn tölvukunnátta. Íslenskukunnátta nauðsynleg. Ökuréttindi.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Geðheilsuteymi HSA er þverfaglegt teymi sem sinnir aðallega 2. línu geðþjónustu fyrir einstaklinga frá 18 ára aldri með flókin eða alvarlegan geðvanda. Í teyminu starfa sálfræðingar, iðjuþjálfi, sjúkraþjálfari, geðlæknir, hjúkrunarfræðingur, félagsráðgjafi og heilbrigðisritari. Haldnir eru vikulegir teymisfundir og lengri fundir mánaðarlega þar sem unnið er að þróunar- og umbótastarfi innan teymisins.
Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar fjórtán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Starfshlutfall er -100%
Umsóknarfrestur er til og með 09.01.2026
Nánari upplýsingar veitir
Sigurlín Hrund Kjartansdóttir
Yfirsálfræðingur og teymisstjóri geðheilsuteymis
Tölvupóstur: sigurlin.h.kjartansdottir@hsa.is
Sími: 862-2793
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Geðhjúkrunarfræðingur - Geðheilsuteymi - Heilbrigðisstofnun Austurlands
Staðsetning
Austurland
Starfshlutfall
-100%
Starf skráð
22.12.2025
Umsóknarfrestur
09.01.2026