Þjónustuaðili
Utanríkisráðuneytið
Upplýsingar um starf
Starf
Utanríkisráðuneytið uppfærir sérfræðingalista á sviði öryggis- og alþjóðamála
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
01.10.2025
Umsóknarfrestur
30.12.2027
Utanríkisráðuneytið uppfærir sérfræðingalista á sviði öryggis- og alþjóðamála
Utanríkisráðuneytið sendir reglulega sérfræðinga til að sinna tímabundnum borgaralegum verkefnum á vettvangi Atlantshafsbandalagsins, Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu, stofnana Sameinuðu þjóðanna eða annarra alþjóðastofnana á sviði alþjóða- og öryggismála. Um er að ræða fjölbreytt störf í krefjandi umhverfi á ólíkum starfsstöðvum víða um heim.
Samkvæmt lögum nr. 73/2007 um friðargæsluna er utanríkisráðuneytinu heimilt að halda lista yfir fólk sem reiðubúið er að takast á hendur friðargæsluverkefni erlendis. Á grundvelli hennar er síðan ráðið tímabundið í umrædd verkefni. Ekki er um fastráðningu að ræða og hámarkslengd ráðningar eru tvö ár.
Með þessari auglýsingu er áhugasömum boðið að skrá sig á umræddan lista og eldri listi fellur úr gildi.
Áréttað er að skráning þessi felur ekki í sér skuldbindingu til ráðningar, hvorki af hálfu utanríkisráðuneytisins né þeirra einstaklinga sem lýst hafa áhuga á að sinna tímabundnum verkefnum á vegum ráðuneytisins. Ráðuneytið metur í hverju tilviki fyrir sig hvaða þekking, kunnátta eða reynsla kemur að mestum notum við ráðningar í einstök verkefni og áskilur sér rétt til að vera ekki bundið af framangreindri skrá.
Helstu verkefni og ábyrgð
Fjölbreytt störf í krefjandi umhverfi á ólíkum starfsstöðvum víða um heim.
Hæfniskröfur
Haldgóð menntun og/eða reynsla á sviði fjölmiðlunar, hagfræði, lögfræði, verkfræði, stjórnmálafræði, verkefnastjórnunar, mannfræði, sagnfræði eða önnur reynsla sem nýst gæti í starfi.
Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
Lipurð í mannlegum samskiptum.
Geta til að aðlagast krefjandi aðstæðum erlendis.
Viðkomandi þarf að vera íslenskur ríkisborgari, vera með hreint sakavottorð og fullnægja skilyrðum um öryggisvottun hjá Ríkislögreglustjóra sbr. reglur nr. 959/2012.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Skráning fer fram á eftirfarandi hlekk og með henni skal fylgja kynningarbréf að hámarki 1 bls. og ferilskrá að hámarki 1 bls.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 30.12.2027
Nánari upplýsingar veitir
Anna Ósk Kolbeinsdóttir
Tölvupóstur: althjodaverkefni@utn.is
Þjónustuaðili
Utanríkisráðuneytið
Upplýsingar um starf
Starf
Utanríkisráðuneytið uppfærir sérfræðingalista á sviði öryggis- og alþjóðamála
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
01.10.2025
Umsóknarfrestur
30.12.2027