
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Umsókn um launaða starfsþjálfun sjúkraliðanema skv. námskrá vorönn 2026
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
60-100%
Starf skráð
22.09.2025
Umsóknarfrestur
02.06.2026
Umsókn um launaða starfsþjálfun sjúkraliðanema skv. námskrá vorönn 2026
Landspítali er háskólasjúkrahús með afar fjölbreytt störf og starfsemi. Spítalinn er suðupunktur þekkingar, þróunar og þverfaglegrar samvinnu og þar eru fjölmörg tækifæri til starfsþróunar og nýrra áskorana.
Nemendur á sjúkraliðabraut sem óska eftir starfsþjálfun á Landspítala sækja um hér.
Hér er eingöngu sótt um starfsþjálfun sem er hluti náms samkvæmt námskrá og er jafnframt launaður hluti þess (ekki verknám, ekki vinna).
Til þess að umsókn teljist gild og leitað verði að plássi fyrir nemanda, þarf umsóknin að uppfylla eftirfarandi skilyrði;
Tilgreint hvaða tímabil (upphaf og endir) óskað er eftir, fjölda vikna og starfshlutfall. Þetta er skráð neðst í "Annað".
Vottorð frá skólanum fylgi í viðhengi þar sem staðfest er að umsækjandi hafi lokið öllum áföngum sem eru nauðsynlegir undanfarar starfsþjálfunar sem sótt er um. Frumriti vottorðs skal síðan skila til viðkomandi yfirmanns ef af starfsþjálfun verður.
Skrá í hvaða skóla umsækjandi er. Ef umsækjandi hefur verið í vinnu, vinnustaðanámi eða starfsþjálfun á Landspítala þarf að geta þess í "Annað" neðst í umsókninni. Einnig ef óskað er eftir vissri deild eða sviði.
Nemendur eru beðnir um að draga umsókn sína til baka ef þeir hafa fengið starfsþjálfun annars staðar. Hægt er að gera það í kerfinu eða með tölvupósti á mannaudur@landspitali.is
Helstu verkefni og ábyrgð
Verkefni og ábyrgð er mismunandi
Hæfniskröfur
Að vera í virku námi samkvæmt ofanskráðu
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Starfsmerkingar: heilbrigðisþjónusta, sjúkraliðanemi
Starfshlutfall er 60-100%
Umsóknarfrestur er til og með 02.06.2026
Nánari upplýsingar veitir
Margrét Þórisdóttir
Tölvupóstur: mannaudur@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Umsókn um launaða starfsþjálfun sjúkraliðanema skv. námskrá vorönn 2026
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
60-100%
Starf skráð
22.09.2025
Umsóknarfrestur
02.06.2026