Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur á bráðadagdeild lyflækninga B1 Fossvogi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

13.08.2026

Umsóknarfrestur

24.08.2026

Hjúkrunarfræðingur á bráðadagdeild lyflækninga B1 Fossvogi

Hjúkrunarfræðingur óskast á bráðadagdeild lyflækninga í 80-100% starf.

Deildin hefur verið starfrækt í 4 ár og er í stöðugri þróun. Mikil uppbygging er fyrirhuguð í bráðaþjónustu spítalans og hefur deildin stórt hlutverk í þeirri vegferð.

Taktu þátt í uppbyggingu á starfsemi bráðadagdeildar lyflækninga með öflugu teymi lækna og hjúkrunarfræðinga.

Deildin er opin frá kl. 8-20 alla daga vikunnar.

Við sækjumst eftir jákvæðum, sjálfstæðum og metnaðarfullum hjúkrunarfræðingi. Í boði er einstaklingsaðlögun undir leiðsögn reyndra fagaðila.

Upphaf starfa er samkomulag en æskilegt að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Mat á hjúkrunarþörfum, gerð áætlunar og meðferð skjólstæðinga deildarinnar

  • Þróun verkferla á nýrri einingu í samstarfi við starfsfólk deildarinnar

  • Skrá hjúkrun í samræmi við reglur Landspítala

  • Fylgjast með nýjungum í hjúkrun

  • Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu

  • Stuðla að góðum starfsanda

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi

  • Góð samstarfshæfni og færni í mannlegum samskiptum

  • Góð íslenskukunnátta

  • Áhugi á að starfa í krefjandi og skemmtilegu umhverfi

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna

Tungumálahæfni: íslenska 3/5

Staðsetning: Fossvogur, 108 Reykjavík

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 24.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Sólveig Hólmfr Sverrisdóttir

Tölvupóstur: solvsver@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur á bráðadagdeild lyflækninga B1 Fossvogi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

13.08.2026

Umsóknarfrestur

24.08.2026