Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Heilbrigðisritari/ Skrifstofumaður í móttöku göngudeildar og bráðamóttöku barna Barnaspítala Hringsins

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

70-90%

Starf skráð

01.07.2026

Umsóknarfrestur

20.07.2026

Heilbrigðisritari/ Skrifstofumaður í móttöku göngudeildar og bráðamóttöku barna Barnaspítala Hringsins

Við viljum ráða þjónustulipran einstakling með framúrskarandi samskiptahæfni til starfa á móttöku Barnaspítala Hringsins. Um er að ræða almenna móttöku og símavörslu. Unnið er á dag- og kvöldvöktum, virka daga sem og um helgar. Starfshlutfall er 70-90% og ráðið verður í starfið frá 1. september 2026 eða eftir samkomulagi.

Á Barnaspítalanum er veitt sérhæfð, fjölskyldumiðuð heilbrigðisþjónusta fyrir börn og unglinga að 18 ára aldri. Í allri þjónustu er áhersla lögð á að greina þarfir og auka vellíðan skjólstæðinganna, með gildi Landspítala um umhyggju, fagmennsku, öryggi og framþróun að leiðarljósi. Samskipti sem byggja á virðingu og stuðningi við börnin og fjölskyldur þeirra er mikilvægur þáttur í starfsemi Barnaspítalans.

Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er nú 36 stundir sem getur orðið enn minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Móttaka, almenn upplýsingagjöf, inn- og útskriftir

  • Símavarsla

  • Innheimta gjalda

  • Birgðaumsjón og frágangur

  • Önnur verkefni í samvinnu við deildarstjóra

Hæfniskröfur

  • Heilbrigðisritaramenntun er æskileg, stúdentspróf og/ eða reynsla af ritarastörfum

  • Jákvætt viðmót, þjónustulipurð, samskiptahæfni og fagleg framkoma

  • Nákvæmni í vinnubrögðum, skipulagshæfni og geta til að vinna undir álagi

  • Góð íslensku- og enskukunnátta

  • Góð tölvukunnátta

  • Hreint sakavottorð

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012.

Umsækjendur skulu framvísa nýju sakavottorði áður en til ráðningar getur komið, sbr. meginreglur laga um barnavernd sem m.a. koma fram í 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2002.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, heilbrigðisritari, skrifstofustörf, móttaka, ritari, skrifstofumaður

Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5

Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 70-90%

Umsóknarfrestur er til og með 20.07.2026

Nánari upplýsingar veitir

Rannveig Björk Guðjónsdóttir

Tölvupóstur: rannvebg@landspitali.is

Sími: 893-5332

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Heilbrigðisritari/ Skrifstofumaður í móttöku göngudeildar og bráðamóttöku barna Barnaspítala Hringsins

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

70-90%

Starf skráð

01.07.2026

Umsóknarfrestur

20.07.2026