Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur - Upplýsingamiðstöð HH

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

70-100%

Starf skráð

30.04.2026

Umsóknarfrestur

11.05.2026

Hjúkrunarfræðingur - Upplýsingamiðstöð HH

Heilsugæsla höfuðborgasvæðisins (HH) leitar að reynslumiklum hjúkrunarfræðingi til þess að sinna starfi teymisstjóra við Upplýsingamiðstöð HH. Viðkomandi ber ábyrgð á skipulagningu hjúkrunarþjónustu í samráði við forstöðumann. Þetta er kjörið tækifæri fyrir skipulagðan og lausnamiðaðan einstakling sem vill takast á við ábyrgðamikið hlutverk í öflugu teymi. Mikil áhersla er lögð á samvinnu milli fagstétta innan starfsstöðva HH og að þjónustuþarfir skjólstæðinga séu ávallt í fyrirrúmi.

Ráðið verður í 70-100% ótímabundið í starf í dagvinnu frá og með 1. júní nk. eða samkvæmt samkomulagi

Nánari upplýsingar má finna inni á www.island.is/starfatorg

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Annast daglegt skipulag og vaktstjórn á virkum dögum

  • Hefur umsjón með símtölum Héraðsvaktar

  • Umsjón með vaktsíma Upplýsingamiðstöðvar

  • Ber ábyrgð á daglegri skráningu í sjúkraskráningakerfi

  • Veitir faglega ráðgjöf í síma og á netspjalli til skjólstæðinga

  • Er ráðgjafandi fyrir þjónustufulltrúa

  • Ber ábyrgð á skipulagi dagvakta á Upplýsingamiðstöð

  • Ber ábyrgð á daglegum samskiptum við heilbrigðisstofnanir

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • A.m.k. 5 ára starfsreynsla sem hjúkrunarfræðingur

  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum

  • Reynsla af starfi í heilsugæslu er kostur

  • Frumkvæði og sjálfstæði vinnubrögðum

  • Skipulagshæfileikar og hæfni til að hafa yfirsýn undir álagi

  • Lausnarmiðuð hugsun og viðbragð

  • Færni til að vinna í þverfaglegu teymi

  • Þekking og hæfni til að meta þarfir skjólstæðinga og finna viðeigandi úrlausnir

  • Þekkir vel heilbrigðiskerfið og úrræði þess

  • Mjög góð tölvukunnátta

  • Íslenskukunnátta skilyrði

  • Góð enskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdastjóra mannauðssviðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt að óska eftir hreinu sakavottorði. Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum.

Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Starfshlutfall er 70-100%

Umsóknarfrestur er til og með 11.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Ingibjörg Rós Kjartansdóttir

Tölvupóstur: ingibjorg.ros.kjartansdottir@heilsugaeslan.is

Sími: 513-6400

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur - Upplýsingamiðstöð HH

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

70-100%

Starf skráð

30.04.2026

Umsóknarfrestur

11.05.2026