Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Ríkis­lög­reglu­stjóri

Upplýsingar um starf

Starf

Aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá embætti ríkislögreglustjóra

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

17.08.2026

Umsóknarfrestur

31.08.2026

Aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá embætti ríkislögreglustjóra

Embætti ríkislögreglustjóra leitar að öflugum leiðtoga til að stýra alþjóðadeild embættisins. Við leitum að einstaklingi sem býr yfir framúrskarandi leiðtogahæfni, víðtækri þekkingu og reynslu af alþjóðasamstarfi og metnaði til að leiða mikilvægt fagstarf á sviði löggæslu. Deildarstjóri gegnir lykilhlutverki í að efla alþjóðlegt samstarf íslenskrar lögreglu og tryggja skilvirk samskipti við innlenda og erlenda samstarfsaðila. Gert er ráð fyrir því að setja í stöðuna til reynslu í 6 mánuði frá og með 1. október 2026 með skipun í huga að loknu reynslutímabili. Um er að ræða 100%.

Um alþjóðadeild

Alþjóðadeild fer með leiðandi hlutverk í alþjóðlegu samstarfi lögreglu og tryggir að íslensk lögregluyfirvöld eigi skilvirk og örugg samskipti við erlenda samstarfsaðila. Deildin annast samstarf við erlend lögregluembætti og alþjóðastofnanir, þar á meðal Europol, Interpol, skrifstofa SIRENE og norrænt lögreglusamstarf auk umsjónar með samskiptakerfum þeirra.

Alþjóðadeild vinnur náið með og aðstoðar lögregluembættin, borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins, Landhelgisgæslu Íslands, Útlendingastofnun auk fjölda annarra innlendra embætta og stofnana.

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Veita faglega forystu og bera ábyrgð á rekstri, skipulagi og þróun alþjóðadeildar.

  • Móta og innleiða stefnu deildarinnar í samræmi við markmið og stefnu embættisins.

  • Stuðla að framþróun, nýsköpun og stöðugum umbótum í starfsemi deildarinnar.

  • Tryggja faglega, skilvirka og vandaða afgreiðslu verkefna og mála.

  • Leiða og styðja starfsfólk með áherslu á góðan starfsanda, jafnrétti og faglega þróun.

  • Byggja upp og viðhalda öflugu samstarfi við innlenda og erlenda samstarfsaðila.

  • Taka þátt í stefnumótun, fræðslu og kynningu á hlutverki deildarinnar.

  • Veita sérfræðiráðgjöf og taka þátt í framkvæmd verkefna á sviði alþjóðasamstarfs löggæslu.

Hæfniskröfur

Menntun og reynsla

  • Próf frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómapróf í lögreglufræðum sem jafngildir a.m.k. 120 ECTS stöðluðum námseiningum, þ.m.t. starfsnámi á vegum lögreglunnar er skilyrði.

  • Farsæl stjórnunarreynsla sem nýtist í starfi er skilyrði.

  • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er skilyrði.

  • Þekking og reynsla af málefnum alþjóðasamstarfs á sviði löggæslu er skilyrði.

  • Staðgóð þekking á sviði íslenskrar löggæslu ásamt reynslu af öryggis- og löggæslumálum er skilyrði.

  • Reynsla af því að vinna undir álagi og leiða umbótastarf er kostur.

  • Reynsla af gerð rekstrar- og verkefnaáætlana er kostur.

  • Reynsla af stefnumótun og breytingastjórn er kostur.

  • Þekking og reynsla af nýsköpun og stafrænni þróun er kostur.

  • Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti er skilyrði.

Persónubundnir þættir

  • Leiðtogahæfni og geta til að hvetja aðra til árangurs.

  • Samskiptahæfni, jákvæðni, drifkraftur og geta til að leiða breytingar.

  • Sjálfstæði í vinnubrögðum og geta til að forgangsraða verkefnum.

  • Skýr og metnaðarfull framtíðarsýn fyrir alþjóðadeild.

  • Færni og reynsla af því að sinna síbreytilegum verkefnum.

  • Metnaður til að takast á við flókin verkefni og ná árangri í starfi.

  • Skipulagshæfni, skýr forgangsröðun, nákvæm og traust vinnubrögð.

  • Aðlögunarhæfni, geta starfað og tekið góðar ákvarðanir undir álagi.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband lögreglumanna hafa gert.

Frekari upplýsingar um starfið

Embætti ríkislögreglustjóra er lifandi þekkingarvinnustaður sem býr að framúrskarandi mannauði sem sinna fjölbreyttum og samfélagslega mikilvægum verkefnum. Lögð er áhersla á opin og jákvæð samskipti, markvissa starfsþróun og samræmingu vinnu og fjölskyldulífs. Embætti ríkislögreglustjóra hefur hlotið jafnlaunavottun.

Stefna embættis ríkislögreglustjóra:

  • Tilgangur: Að vernda og virða

  • Sýn: Að vinna að öruggara samfélagi

  • Markmið: Að vera þjónustudrifin, framsækin og upplýsandi

  • Áherslur: Þjónusta - fagmennska - mannauður - tækni - reksturs

Umsóknarfrestur er til og með 31. ágúst 2026. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá lokum umsóknarfrests. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Áskilinn er réttur til að hafna öllum umsóknum.

Umsækjendur skulu senda inn ferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist til að sinna starfinu í samræmi við þær hæfniskröfur sem fram koma í auglýsingu. Umsóknir skulu berast rafrænt í gegnum Starfatorg. Umsækjendum um störf hjá embætti ríkislögreglustjóra kann að vera gert að leysa verkefni í ráðningarferlinu sem kæmu, auk annarra þátta, heildstætt inn í mat á hæfni þeirra til viðkomandi starfa.

Vakin er athygli á því að samkvæmt 28. gr. a. lögreglulaga nr. 90/1996 má engan skipa, setja eða ráða til starfa hjá lögreglu sem hefur hlotið fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir að hann varð fullra 18 ára eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til þess að staðreyna þetta er lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu. Með vísan til 24. gr. varnarmálalaga nr. 34/2008 og 20. gr. reglugerðar nr. 959/2012, sbr. einnig 30. og 31. gr. reglugerðarinnar þarf starfsmaður að standast bakgrunnskoðun til að hljóta öryggisvottun vegna starfans.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 31.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Dagný Tra Magnadóttir

Tölvupóstur: dagny.magnadottir@logreglan.is

Sími: 4442500

Þjónustuaðili

Ríkis­lög­reglu­stjóri

Upplýsingar um starf

Starf

Aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá embætti ríkislögreglustjóra

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

17.08.2026

Umsóknarfrestur

31.08.2026