Þjónustuaðili
Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra
Upplýsingar um starf
Starf
Staða yfirlögregluþjóns - lögreglustjórinn Norðurlandi vestra
Staðsetning
Norðurland vestra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
30.07.2026
Umsóknarfrestur
14.08.2026
Staða yfirlögregluþjóns - lögreglustjórinn Norðurlandi vestra
Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra auglýsir lausa til umsóknar stöðu yfirlögregluþjóns með starfsstöð á Sauðárkróki. Gert er ráð fyrir að lögreglustjóri setji í stöðuna frá og með 1. október nk. með skipun í huga að loknum reynslutíma.
Helstu verkefni og ábyrgð
Um hlutverk og verksvið lögreglu er fjallað í 1. gr. lögreglulaga nr. 90/1996 og 11. gr. reglugerðar um starfsstig innan lögreglunnar nr. 1051/2006 þar sem fram kemur að hlutverk lögreglu séu m.a. að gæta almannaöryggis og halda uppi lögum og reglu, leitast við að tryggja réttaröryggi borgaranna og vernda eignarrétt, opinbera hagsmuni og hvers konar lögmæta starfsemi. Stemma stigu við afbrotum og koma í veg fyrir athafnir sem raska öryggi borgaranna og ríkisins auk þess að vinna að uppljóstran brota, stöðva ólögmæta háttsemi og fylgja málum eftir í samræmi við það sem mælt er fyrir um í lögum, ásamt því ð að greiða götu borgaranna eftir því sem við á og aðstoða þá þegar hætta steðjar að. Um verksvið og ábyrgð yfirlögregluþjóns vísast nánar til 5. gr. reglugerðar nr. 1051/2006 auk annarra verkefna sem honum eru falin af lögreglustjóra hverju sinni.
Hæfniskröfur
Umsækjendur skulu:
Hafa lokið prófi frá lögregluskóla ríkisins eða diplómaprófi í lögreglufræðum sem jafngilda a.m.k. 120 stöðluðum námseiningum, þ.m.t. starfsnámi á vegum lögreglunnar.
Hafa starfað sem lögreglumaður í að lágmarki fimm ár eftir að lögreglunámi lauk.
Hafa reynslu af stjórnun innan lögreglu.
Búa yfir góðri almennri tölvukunnáttu sem og þekkingu á bókhalds- og öðrum skráningarkerfum lögreglu ásamt getu til að starfa í stafrænu starfsumhverfi.
Hafa þekkingu og/ eða reynslu af þjálfun og kennslu lögreglumanna og geta stuðlað að aukinni hæfni og framþróun starfsmanna í störfum sínum.
Hafa framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og hæfni til að starfa í hóp.
Vera sjálfstæðir og sveigjanlegir í starfi og búa yfir skipulagshæfni og nákvæmni í vinnubrögðum.
Vera lausnamiðaðir og jákvæðir og geta sýnt frumkvæði í störfum sínum.
Hafa góða íslensku- og enskukunnáttu, bæði í ræðu og riti.
Hafa menntun og/eða reynslu af verkefna- og viðburðastjórnun.,
Hafa þekkingu á málefnum almannavarna.
Geta átt auðvelt með að starfa undir álagi.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband lögreglumanna hafa gert.
Um er að ræða 100% starfshlutfall í dagvinnu með bakvaktaskyldu og eru laun skv. kjarasamningi Landssambands lögreglumanna og fjármála- og efnahagsráðherra f.h. ríkissjóðs og gildandi stofnanasamnings.
Embættið leggur áherslu á jafnrétti kynja og hvetur því fólk af öllum kynjum til að sækja um.
Athygli umsækjenda er bent á að ekki er heimilt að skipa manneskju eða ráða til starfa hjá lögreglu sem hlotið hefur fangelsisdóm sem framinn var eftir að hann varð fullra 18 ára, eða sýnt af sér háttsemi sem rýrt getur það traust sem nauðsynlegt er að starfsmenn lögreglu njóti. Til að staðreyna framangreint er lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu, sbr. 28. gr. lögreglulaga nr. 90/1996.
Gert er ráð fyrir að lögreglustjóri setji í stöðuna frá og með 1. október 2026, með fimm ára skipun í huga að loknum reynslutíma.
Umsóknarfrestur er til og með 14. ágúst 2026 og verða umsóknir sem berast að þeim tíma liðnum ekki teknar til greina.
Öllum gildum umsóknum verður svarað þegar ákvörðum um skipun í auglýst störf liggur fyrir.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 14.08.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra
Upplýsingar um starf
Starf
Staða yfirlögregluþjóns - lögreglustjórinn Norðurlandi vestra
Staðsetning
Norðurland vestra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
30.07.2026
Umsóknarfrestur
14.08.2026