Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Læknir - Tímabundið starf

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

05.08.2026

Umsóknarfrestur

20.08.2026

Læknir - Tímabundið starf

Læknir með lækningaleyfi óskast til starfa á dag- og göngudeild blóð- og krabbameinslækninga. Um er að ræða tímabundið starf til sex mánaða. Ráðning er frá 1. september 2026 eða eftir nánara samkomulagi.

Starfið felur í sér göngudeildarvinnu á dag- og göngudeild blóð- krabbameinslækninga 11B/C. Sjúklingar sem sækja þá deild eru í krabbameinslyfjameðferð, eftirliti eftir meðferð krabbameina eða með bráð vandamál í tengslum við undirliggjandi sjúkdóm eða meðferð. Góð samvinna er við legudeild 11 EG, Heimaspítala og HERU. Læknirinn fær sérstaka starfslýsingu, aðlögun og skipulagða handleiðslu sérfræðilæknis.

Unnið er í náinni samvinnu við sérfræðilækna í krabbameinslækningum og felur starfið í sér þverfaglega teymisvinnu með öðrum sérgreinum læknisfræðinnar sem og öðrum starfstéttum sem koma að meðferð krabbameina. Lögð er sérstök áhersla á traust og teymisvinnu innan einingarinnar.

Starfið getur nýst vel þeim sem hafa hug á frekara sérnámi í krabbameinslækningum eða þeim sem hugsanlega hyggja á frekara sérnám í öðrum greinum sem koma að greiningu og meðferð krabbameina, svo sem á sviðum lyf- og skurðlækninga.

Fagleg árvekni og endurskoðun klínískra leiðbeininga og verkferla er hluti af fagmennsku deildarinnar.

Vinnulagið á deildinni byggir á samvinnu margra starfsstétta með það að markmiði að einstaklingar sem greinst hafa með krabbamein fá viðeigandi meðferð og stuðning.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Klínískt mat og meðferð á bráðum vandamálum tengdum krabbameinum og lyfjameðferð

  • Klínískt mat á einstaklingum sem eru í krabbameinslyfjameðferð varðandi aukaverkanir

  • Sinna ráðgjöf til annarra deilda varðandi sjúklinga í krabbameinsmeðferð eða þá sem nýlega hafa greinst í samráði við krabbameinslækna

  • Sinna erindum frá Heimaspítala krabbameinsþjónustu eins og við á

  • Þátttaka í samvinnu ólíkra sérgreina læknisfræðinnar s.s. eins og samráðsfundum

  • Þátttaka í gæða- og umbótastarfi

  • Þátttaka í kennslu og vísindastarfi

  • Þátttaka í vöktum almennra lyflækninga skv. samkomulagi

Hæfniskröfur

  • Íslenskt lækningaleyfi

  • Sérnámsgrunni eða sambærilegu starfsnámi lokið við upphaf starfs

  • Góð færni og lipurð í mannlegum samskiptum og teymisvinnu

  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

  • Áhugi á að bæta þekkingu og færni í starfi

  • Gott vald á íslensku máli

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Læknir, Almennur læknir

Tungumálahæfni: íslenska 4/5

Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 50-100%

Umsóknarfrestur er til og með 20.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Agnes Smáradóttir

sérfræðilæknir

Tölvupóstur: agnessma@landspitali.is

Sími: 825-5028

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Læknir - Tímabundið starf

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

05.08.2026

Umsóknarfrestur

20.08.2026