Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Framhalds­skólinn í Mosfellsbæ

Upplýsingar um starf

Starf

Stuðningsfulltrúi á Sérnámsbraut

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50-60%

Starf skráð

04.08.2026

Umsóknarfrestur

14.08.2026

Stuðningsfulltrúi á Sérnámsbraut

Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ leitar eftir stuðningfulltrúa til starfa við Sérnámsbraut skólans frá og með 18. ágúst 2026.

Um er að ræða námsbraut fyrir fatlaða nemendur með fjölbreyttar og viðkvæmar stuðningsþarfir.

Helstu verkefni og ábyrgð

Stuðningur við nemendur á Sérnámsbraut skólans m.a. í:

Félagslegum samskiptum

Þátttöku í skólastarfi

Athöfnum daglegs lífs

Hæfniskröfur

Jákvæði og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi

Hæfni í mannlegum samskiptum

Stundvísi og áreiðanleiki

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Umsókn skal fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Umsækjendur þurfa að skila inn hreinu sakavottorði skv. lögum nr. 92/2008. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út nema að umsækjandi ákveði annað.

Í samræmi við jafnréttisáætlun skólans er áhugasamt fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um starfið. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir.

Starfshlutfall er 50-60%

Umsóknarfrestur er til og með 14.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Kristján Arnar Ingason

Tölvupóstur: kristjan@fmos.is

Sími: 6952008

Bergþóra Hlín Arnórsdóttir

Tölvupóstur: ba@fmos.is

Sími: 4128500

Þjónustuaðili

Framhalds­skólinn í Mosfellsbæ

Upplýsingar um starf

Starf

Stuðningsfulltrúi á Sérnámsbraut

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50-60%

Starf skráð

04.08.2026

Umsóknarfrestur

14.08.2026