Þjónustuaðili
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
Upplýsingar um starf
Starf
Þjónustufulltrúi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
29.07.2026
Umsóknarfrestur
14.08.2026
Þjónustufulltrúi
Þjónustufulltrúi á þjónustu- og leyfasviði sinnir fjölbreyttum verkefnum í öllum málaflokkum þjónustuteymis. Verkefni varða lög sem gilda um málaflokkana, s.s. vegabréf, ökuskírteini og fleira. Þjónustufulltrúi ber ábyrgð á að taka á móti, greina erindi og veita viðskiptavinum þjónustu, afgreiða og skrá beiðnir og gögn og leysa farsællega úr verkefnum. Þjónustufulltrúi skal vinna að faglegri afgreiðslu mála samkvæmt lögum og verkferlum.
Helstu verkefni og ábyrgð
Móttaka viðskiptavina og greining erinda
Upplýsingagjöf, leiðbeiningar og samskipti við viðskiptavini
Móttaka, úrvinnsla og frágangur umsókna um vegabréf, nafnskírteini, ökuskírteini
Flokkun og dreifing gagna sem berast embættinu
Móttaka og frágangur á umsóknum um ökuskírteini, vegabréf og nafnskírteini
Skjalafrágangur, skönnun og skjalavarsla
Önnur þjónustuverkefni þvert á embættið
Hæfniskröfur
Stúdentspróf skilyrði, framhaldsmenntun er kostur
Framúrskarandi þjónustulund og áhugi á góðri þjónustuupplifun viðskiptavina
Jákvæðni og lipurð í samskiptum
Frumkvæði, lausnamiðun og hæfni til að leiðbeina og miðla upplýsingum
Sveigjanleiki, álagsþol og aðlögunarhæfni
Hæfni til að vinna í teymi
Geta til að takast á við áskoranir með jákvæðu viðhorfi
Vilji til að þróa eigin færni í takt við þróun starfsins
Skipulagshæfileikar og sjálfstæði í starfi
Nákvæmni og traust vinnubrögð
Góð tölvukunnátta
Íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Umsókn skal skilað í gegnum umsóknarkerfi Alfred.is og þarf að fylgja CV og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsóknir gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Vinnutími er frá kl. 08:00 - 15:30 alla virka daga nema föstudaga kl. 08:00 - 14:00.
Umsóknarfrestur er til og með 15. ágúst 2026
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 14.08.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
Upplýsingar um starf
Starf
Þjónustufulltrúi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
29.07.2026
Umsóknarfrestur
14.08.2026