Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Fjármála- og efnahags­ráðu­neytið

Upplýsingar um starf

Starf

Hagfræðingur á skrifstofu skattamála

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

18.08.2026

Umsóknarfrestur

31.08.2026

Hagfræðingur á skrifstofu skattamála

Fjármála- og efnahagsráðuneytið leitar að framúrskarandi hagfræðingi til að sinna fjölbreyttum verkefnum á sviði áætlanagerðar, greininga og skattamála.

Skrifstofa skattamála tekur þátt í mótun stefnu í skattamálum og tekjuöflun ríkisins. Meðal verkefna skrifstofunnar er undirbúningur og gerð lagafrumvarpa á sviði skattamála ásamt mati á áhrifum fyrirhugaðra skattbreytinga. Skrifstofan undirbýr setningu heildarmarkmiða um tekjuöflun ríkissjóðs og hins opinbera og hefur umsjón með tekjuáætlun fjárlaga og áætlana auk þess að sinna samtímavöktun á innheimtu og greiningu tekna og þróun einstakra skattstofna. Skrifstofan tekur auk þess þátt í alþjóðlegu samstarfi og annast undirbúning og gerð tvísköttunar­samninga.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þátttaka í stefnumörkun og áætlanagerð er varðar tekjuöflun ríkissjóðs.

  • Gagnavinnsla og greining á horfum og þróun til lengri tíma.

  • Almenn umfjöllun í ræðu og riti um skattamál og tekjuöflun ríkissjóðs.

  • Stuðningur og ráðgjöf vegna skatta- og tekjumála almennt.

  • Ýmis nefndarstörf og þátttaka í starfshópum á verkefnasviði skrifstofunnar.

  • Samskipti við innlendar og erlendar stofnanir og hagaðila á sviði skattamála.

Hæfniskröfur

  • Meistaragráða á sviði hagfræði er skilyrði.

  • Reynsla af áætlanagerð og greiningarvinnu sem nýtist í starfi.

  • Góð þekking og reynsla af hagnýtingu og þróun reiknilíkana og gagnasafna.

  • Reynsla af notkun hagrannsóknaforrita er kostur.

  • Lausnamiðuð hugsun, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.

  • Mjög góð samskiptahæfni auk hæfni til að taka þátt í teymisvinnu.

  • Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti er skilyrði.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins hafa gert.

Í boði er áhugavert starf á krefjandi og skemmtilegum vinnustað. Á skrifstofu skattamála starfa 11 sérfræðingar en í ráðuneytinu eru alls um 100 starfsmenn. Ráðuneytið hefur frumkvæði, fagmennsku og árangur að leiðarljósi í starfsemi sinni. Upplýsingar um starfsemi ráðuneytisins er að finna á Stjórnarráðið | Fjármála- og efnahagsráðuneytið.

Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá birtingu þessarar auglýsingar, sbr. reglur nr. 1000/2019 um auglýsingu lausra starfa. Til greina kemur að ráða fleiri en einn aðila á grundvelli þessarar auglýsingar. Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 31.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Helga Jónsdóttir

skrifstofustjóri

Tölvupóstur: helga.jonsdottir@fjr.is

Kristín Gunnarsdóttir

mannauðsstjóri

Tölvupóstur: kristin.gunnarsdottir@fjr.is

Þjónustuaðili

Fjármála- og efnahags­ráðu­neytið

Upplýsingar um starf

Starf

Hagfræðingur á skrifstofu skattamála

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

18.08.2026

Umsóknarfrestur

31.08.2026