Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Vaktasmiður skurðlækninga-, skurðstofu og gjörgæsluþjónustu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

06.07.2026

Umsóknarfrestur

16.07.2026

Vaktasmiður skurðlækninga-, skurðstofu og gjörgæsluþjónustu

Starf vaktasmiðs á sviði skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæsluþjónustu á Landspítala er laust til umsóknar. Um er að ræða dagvinnustarf sem felur í sér mikil samskipti og fjölbreytt og krefjandi verkefni.

Við sækjumst eftir öflugum einstaklingi sem er lausnamiðaður, fljótur að læra og tileinka sér hlutina. Viðkomandi þarf að vera töluglöggur og skipulagður og hafa ríka þjónustulund, góða samskiptahæfni og sýna frumkvæði, nákvæmni og aga í vinnubrögðum.

Vaktasmiður heyrir undir framkvæmdastjóra sviðs skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæsluþjónustu og þar starfa um 1200 einstaklingar. Megin verkefni vaktasmiðs er gerð vaktaskýrslna fyrir deildir sviðsins og að tryggja rétta vaktaskýrslugerð. Unnið er í Orra fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins og Vinnustund sem og excel og MyTimePlan.

Starfshlutfall er 100% og er starfið laust frá september 2026 eða eftir nánara samkomulagi. Í boði er stytting vinnuvikunnar, góð vinnuaðstaða, verkefnamiðað vinnurými og gott mötuneyti.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Gerð vaktaskýrslna

  • Eftirlit og umsjón við gerð vaktaskýrslna

  • Kennsla fyrir starfsfólk á vaktakerfið

  • Eftirlit með skráningu Vinnustundar

  • Úttekt og úrvinnsla skýrslna

  • Önnur tilfallandi verkefni í samráði við yfirmann

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi

  • Reynsla af sambærilegu starfi

  • Þekking á Vinnustund eða sambærilegu vakta- og viðverukerfi er kostur

  • Reynsla og áhugi á að sinna fræðslu, ráðgjöf og miðla þekkingu

  • Þekking á kjarasamningum og stofnanasamningum er kostur

  • Metnaður, frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt

  • Mikil tölvufærni, greiningarhæfni og nákvæmni í vinnubrögðum

  • Rík þjónustulund, frumkvæði, og færni í mannlegum samskiptum

  • Góð íslensku- og enskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, skrifstofustörf, teymisvinna

Tungumálahæfni: íslenska 4/5

Staðsetning: Hringbraut/Fossvogur, Reykjavík

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 16.07.2026

Nánari upplýsingar veitir

Hjörtur Friðrik Hjartarson

Tölvupóstur: hjorturf@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Vaktasmiður skurðlækninga-, skurðstofu og gjörgæsluþjónustu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

06.07.2026

Umsóknarfrestur

16.07.2026