Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Suður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingar á hjúkrunarheimili HSU

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

70-100%

Starf skráð

21.08.2024

Umsóknarfrestur

28.12.2029

Hjúkrunarfræðingar á hjúkrunarheimili HSU

Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa á hjúkrunarheimili HSU.

HSU veitir heilsugæslu-, sjúkrahús- og öldrunarþjónustu ásamt því að annast sjúkraflutninga. Þjónustusvæðið nær frá Þorlákshöfn í vestri til Hafnar í austri.

Hlutverk HSU er að móta, þróa og útfæra heilbrigðisþjónustu í umdæminu og tryggja íbúum Suðurlands og öðrum þjónustuþegum jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni.

Þjónustumarkmið HSU byggja á gildum okkar um fagmennsku, virðingu og samvinnu. Velferð og þarfir þjónustuþega eru okkar leiðarljós.

Í boði eru störf á eftirfarandi hjúkrunarheimilum:

  • Móberg, Selfossi

  • Foss- og Ljósheimar, Selfossi

  • Hraunbúðir, Vestmannaeyjum

Vinsamlegast skráið óskir um starfsstöð í reitinn " Annað" í umsóknarferlinu.

Öll hjúkrunarheimili HSU byggja á hugmyndafræði Eden stefnunnar og lagt er upp úr einstaklingsbundinni endurhæfingu íbúa í leik og starfi.

Á Móbergi eru fimm almennar hjúkrunareiningar þar sem 12 einstaklingar búa á hverri einingu.

Á Fossheimum og Ljósheimum eru 44 einstaklingsherbergi en 4 þeirra eru ætluð fyrir skammtímainnlagnir

Á Hraunbúðum eru 30 hjúkrunarrými, 4 dvalarrými og 1 hvíldarrými auk annarrar þjónustu við eldri borgara.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Um er að ræða fjölbreytt starf með skemmtilegu og metnaðarfullu starfsfólki.

  • Mikið er lagt upp úr góðu þverfaglegu samstarfi þar sem fagmennska, umhyggja og virðing fyrir skjólstæðingum og fjölskyldum þeirra er höfð að leiðarljósi.

  • Um er að ræða vaktavinnu, skipulag vakta er í samráði við deildarstjóra.

Hæfniskröfur

  • Hjúkrunarnám frá viðurkenndri menntastofnun.

  • Starfsleyfi landlæknis og/eða vottorð frá skóla um námsframvindu

  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, áreiðanleiki og síðast en ekki síst jákvætt viðhorf.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókninni þurfa að fylgja staðfestar upplýsingar um menntun, starfsleyfi og fyrri störf.

Starfshlutfall og upphafsdagur ráðningar eftir samkomulagi.

Starfshlutfall er 70-100%

Umsóknarfrestur er til og með 28.12.2029

Nánari upplýsingar veitir

Harpa Íshólm Ólafsdóttir

Tölvupóstur: harpa.i.olafsdottir@hsu.is

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Suður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingar á hjúkrunarheimili HSU

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

70-100%

Starf skráð

21.08.2024

Umsóknarfrestur

28.12.2029