Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Háskólinn á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Aðjúnkt í lögfræði með áherslu á heimskautarétt

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

15.06.2026

Umsóknarfrestur

25.06.2026

Aðjúnkt í lögfræði með áherslu á heimskautarétt

Háskólinn á Akureyri auglýsir lausa 100% stöðu aðjúnkts I í lögfræði með áherslu á heimskautarétt við Lagadeild, Hug- og félagsvísindasviðs. Ráðningin er tímabundin til eins árs með möguleika á framlengingu um eitt ár. Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf 1. ágúst 2026, eða samkvæmt samkomulagi. Næsti yfirmaður er forseti Lagadeildar. Starfsstöðin er á Akureyri.

Helstu verkefni og ábyrgð

Kennsla, rannsóknir og stjórnsýslustörf í heimskautarétti. Meðal námsgreina í heimskautarétti við Lagadeild HA er þjóðaréttur, auðlindaréttur, frumbyggjaréttur og mannréttindalögfræði. Einnig kennsla í grunn- og framhaldsnámi í lögfræði við Lagadeild HA, m.a. á sviði mannréttinda og samanburðarlögfræði. Nauðsynlegt er að viðkomandi geti kennt á ensku og hafi kunnáttu í íslensku.

Umsækjendur þurfa að geta tekið virkan þátt í framkvæmd og þróun sveigjanlegs náms og almennri uppbyggingu náms við deildina. Sérstaða laganáms við Háskólann á Akureyri felst í framsýnu, sveigjanlegu námi þar sem ekki er gerður greinarmunur á staðnámi og fjarnámi.

Hæfniskröfur

Menntunarkröfur:

Umsækjendur þurfa að lágmarki að hafa embættis- eða meistarapróf í lögfræði.

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af háskólakennslu er skilyrði og æskilegt að viðkomandi hafi reynslu af kennslu í sveigjanlegu háskólanámi.

  • Reynsla af fræðistörfum, einkum á sviðum sem tengjast kennslu viðkomandi.

  • Þekking á kennslukerfi háskólanna, Uglu og Canvas.

  • Gott vald á ensku og færni í að tjá sig í ræðu og riti er skilyrði.

  • Lágmarksþekking í íslensku er skilyrði.

  • Sjálfstæð og öguð vinnubrögð.

  • Færni og lipurð í mannlegum samskiptum ásamt góðri færni í að miðla eigin þekkingu.

  • Frumkvæði, sveigjanleiki og skipulagshæfni.

  • Geta til að vinna undir álagi.

Umsókn skal fylgja:

Greinargott yfirlit yfir náms- og starfsferil, fræðistörf og kennslureynslu.

Staðfest afrit af prófskírteinum á íslensku eða ensku.

Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið.

Tilnefna skal a.m.k. tvo umsagnaraðila og er æskilegt að einn þeirra sé næsti yfirmaður í núverandi eða fyrra starfi umsækjanda sem háskólakennari.

Við mat á umsóknum er tekið mið af hversu vel viðkomandi uppfyllir þarfir Lagadeildar Háskólans á Akureyri.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara á Akureyri hafa gert.

Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu í starfið hefur verið tekin. Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Háskólinn á Akureyri stuðlar að jafnrétti kynjanna og hvetur öll kyn til að sækja um laus störf.

Félag háskólakennara á Akureyri Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara á Akureyri hafa gert. is is

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 25.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Ingibjörg Ingvadóttir

forseti Lagadeildar

Tölvupóstur: ingibjorging@unak.is

Sími: 8919009

Thomas Barry

forseti Hug- og félagsvísindasviðs

Tölvupóstur: tom@unak.is

Sími: 4608028

Þjónustuaðili

Háskólinn á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Aðjúnkt í lögfræði með áherslu á heimskautarétt

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

15.06.2026

Umsóknarfrestur

25.06.2026