
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hefurðu áhuga á geðhjúkrun og bráðaþjónustu?
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
22.07.2026
Umsóknarfrestur
05.08.2026
Hefurðu áhuga á geðhjúkrun og bráðaþjónustu?
Við leitum að hjúkrunarfræðingi með áhuga á geðhjúkrun og bráðaþjónustu til starfa í bráða- og ráðgjafarþjónustu geðþjónustunnar við Hringbraut. Starfið býður upp á náið samstarf í öflugu þverfaglegu teymi, fjölbreytt verkefni, og sjálfstæði í starfi. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, markvissa starfsþróun og stuðning við nýja starfsmenn með skipulagðri aðlögun og faglegri leiðsögn. Á deildinni gefast fjölmörg tækifæri til starfsþróunar og aukinnar sérhæfingar. Starfið er laust frá og með 15.ágúst 2026 eða skv. samkomulagi.
Starfsemi bráða- og ráðgjafarþjónustunnar er fjórþætt:
Opin bráðamóttaka fyrir einstaklinga með bráðan og alvarlegan geðrænan vanda
Skammtímaeftirfylgd eftir komu á bráðamóttöku
Geðráðgjafaþjónusta fyrir bráðamóttökuna í Fossvogi
Geðráðgjafaþjónusta fyrir vefrænar deildir Landspítala
Helstu verkefni og ábyrgð
Fjölbreytt mats- og meðferðarstarf sem tengist sérhæfingu þjónustunnar
Virk þátttaka í þverfaglegu samstarfi og framþróun í starfsemi þjónustunnar
Virk þátttaka í fræðslustarfi
Sérverkefni sem tengjast starfi og þróun þjónustunnar
Hæfniskröfur
Faglegur metnaður og áhugi á geðhjúkrun
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Góð samskiptahæfni og leiðtogahæfileikar
Stundvísi og áreiðanleiki
Hæfni til að halda góðri yfirsýn og forgangsraða verkefnum
Reynsla af vinnu með einstaklingum með geðrænan vanda er kostur
Sérmenntun innan hjúkrunar er kostur
Íslenskt starfsleyfi hjúkrunarfræðings
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Starfið er að mestu dagvinna, auk helgarvaktar að jafnaði sjöttu hverja helgi og einnar síðdegisvaktar (kl. 12:00-20:00) á viku.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun
Tungumálahæfni: íslenska 4/5
Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 05.08.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hefurðu áhuga á geðhjúkrun og bráðaþjónustu?
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
22.07.2026
Umsóknarfrestur
05.08.2026