Þjónustuaðili
Umhverfis- og orkustofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Vilt þú leiða Evrópuverkefni um hringrásarhagkerfi?
Staðsetning
Óstaðbundið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
01.07.2026
Umsóknarfrestur
10.08.2026
Vilt þú leiða Evrópuverkefni um hringrásarhagkerfi?
Umhverfis- og orkustofnun leitar að sérfræðingi til að stýra metnaðarfullu Evrópuverkefni sem styrður innleiðingu hringrásarhagkerfis á Íslandi.
Um er að ræða sex ára LIFE-verkefni með þátttöku 17 samstarfsaðila, þar á meðal stofnana, fyrirtækja og sveitarfélaga. Verkefnið snýr að innleiðingu stefnu stjórnvalda Í átt að hringrásarhagkerfi. Markmið stefnunnar er að koma á öflugu hringrásarhagkerfi á Íslandi, draga úr úrgangi, auka endurvinnslu, minnka sóun og efla sjálfbæra neyslu og framleiðslu.
Í starfinu mun viðkomandi bera ábyrgð á daglegri verkefnastýringu, samhæfingu samstarfsaðila og eftirfylgni með verkefninu. Starfið felur meðal annars í sér að halda utan um verkáætlanir og framvindu, miðla upplýsingum, tryggja skil á gögnum og skýrslum til styrkveitanda og vinna náið með fjölbreyttum samstarfsaðilum innanlands og utan.
Starfið er í teymi hringrásarhagkerfis. Teymið sinnir fjölbreyttum verkefnum á sviði úrgangsforvarna, úrgangsmála, umhverfismerkisins Svansins og sjálfbærrar neyslu og framleiðslu. Teymið vinnur að innleiðingu stefnu stjórnvalda um hringrásarhagkerfi í nánu samstarfi við atvinnulíf, sveitarfélög og aðrar opinberar stofnanir.
Helstu verkefni og ábyrgð
Verkefnastýring LIFE-verkefnisins og samstarf um önnur verkefni á sviði hringrásarhagkerfis
Samhæfa samstarf ráðuneyta, stofnana, sveitarfélaga, fyrirtækja og annarra samstarfsaðila verkefnisins, þar á meðal að skipuleggja fundi, vinnustofur og samráðsvettvang.
Halda utan um aðgerðir, tímaáætlanir, markmið og framvindu verkefnsins
Annast skýrslugjöf og samskipti við styrkveitandann
Taka þátt í þróun og innleiðingu verkefna sem styðja við hringrásarhagkerfi á Ísland
Miðla árangri og framvindu verkefnisins
Hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi, til dæmis í umhverfisfræði eða umhverfisverkfræði
Þekking á hringrásarhagkerfi og brennandi áhugi á málaflokknum er kostur.
Reynsla af rekstri stórra verkefna, til dæmis Evrópuverkefna, er æskileg
Reynsla af því að stýra hagaðilasamstarfi er kostur
Mjög góð færni í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti
Góð skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni
Góð greiningarhæfni og hæfni til að fylgja verkefnum eftir til árangurs
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Spennandi verkefni og gott vinnuumhverfiUmhverfis- og orkustofnun fer með stjórnsýslu og eftirlit á sviði loftslags-, umhverfis- og orkumála og málefni auðlindanýtingar. Verkefni stofnunarinnar eru fjölbreytt og starfsumhverfið er metnaðarfullt. Við viljum laða að öflugt fagfólk sem leggur áherslu á stöðugar umbætur, stafræna þróun og miðlun. Umhverfis- og orkustofnun leggur áherslu á heilsu, öryggi og vellíðan og góð skilyrði fyrir starfsfólk til að þróast og eflast í starfi. Starfsaðstaða er víða í verkefnamiðuðu vinnuumhverfi og við viljum hlýlegt andrúmsloft fyrir allt starfsfólk. Við erum með 36 stunda vinnuviku og sveigjanlegan vinnutíma. Sjá nánari upplýsingar um Umhverfis- og orkustofnun á uos.is.
Starfsstöðvar kringum landiðStarfsstöðvar Umhverfis- og orkustofnunar eru á Akureyri, Egilsstöðum, Selfossi og í Reykjavík. Um næstu áramót verða til starfsstöðvar á fleiri stöðum á landinu vegna sameiningar heilbrigðiseftirlita við stofnunina. Starfsfólk okkar getur valið starfsstöð. Gott vinnuumhverfi er okkar markmið, á öllum starfsstöðvum.
Næsti yfirmaður sérfræðingsins er Sigurður Ingi Friðleifsson sviðsstjóri, en Þorbjörg Sandra Bakke teymisstjóri veitir einnig nánari upplýsingar um starfið auk Þóru Margrétar Pálsdóttur Briem mannauðsstjóra í síma 569 6000. Umsóknarfrestur er til 10. ágúst.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf á íslensku, þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda í starfið.
TIL AÐ SÆKJA UM SMELLIÐ HÉR
ATH!! Einungis er tekið við umsóknum á 50skills en ekki í gegnum Starfatorg.
Gagnkvæmur reynslutími er sex mánuðir við ráðningu. Æskilegt er að sérfræðingurinn geti hafið störf sem fyrst. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Við hvetjum áhugasöm til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 10.08.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Umhverfis- og orkustofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Vilt þú leiða Evrópuverkefni um hringrásarhagkerfi?
Staðsetning
Óstaðbundið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
01.07.2026
Umsóknarfrestur
10.08.2026