Þjónustuaðili
DMR
Upplýsingar um starf
Starf
Viltu taka þátt í baráttunni gegn netbrotum?
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
16.07.2026
Umsóknarfrestur
05.08.2026
Viltu taka þátt í baráttunni gegn netbrotum?
Dómsmálaráðuneytið leitar af öflugum og drífandi lögfræðingi með brennandi áhuga á netbrotum til starfa á skrifstofu alþjóðamála. Skrifstofan fer með málefni afbrotavarna, landamæravörslu og útlendinga og meðal málaflokka eru aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi, peningaþvætti, spilling og mútur, netbrot og varnir gegn hryðjuverkum og fjármögnun þeirra.
Helstu verkefni og ábyrgð
Leitað er að lögfræðingi til þess að vinna að verkefnum er varða netbrot, alþjóðlega sakamálaaðstoð, varnir gegn hryðjuverkum og fjármögnun þeirra. Í starfinu felst meðal annars stefnumótun á málefnasviðinu, umsjón með viðeigandi löggjöf, reglugerðum og stjórnsýsluframkvæmd, auk upplýsingagjafar til Alþingis og fyrirsvar gagnvart einstaklingum, hagsmunaaðilum og félagasamtökum á málefnasviðinu.
Hæfniskröfur
Embættis- eða meistarapróf í lögfræði.
Þekking og reynsla af stjórnsýslurétti.
Þekking eða áhugi á tæknilögfræði í breiðu samhengi
Þekking og reynsla af alþjóðlegu samstarfi er kostur.
Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum.
Fagmennska, frumkvæði, drifkraftur og lausnamiðuð hugsun.
Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal senda í gegnum starfatorg og skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni viðkomandi til að sinna starfinu. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Umsóknir gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna um auglýsingar á lausum störfum nr. 1000/2019.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 05.08.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
DMR
Upplýsingar um starf
Starf
Viltu taka þátt í baráttunni gegn netbrotum?
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
16.07.2026
Umsóknarfrestur
05.08.2026