Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Borgar­holts­skóli

Upplýsingar um starf

Starf

Félags- og samfélagsmiðlafulltrúi Borgarholtsskóla

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50%

Starf skráð

16.06.2026

Umsóknarfrestur

26.06.2026

Félags- og samfélagsmiðlafulltrúi Borgarholtsskóla

Borgarholtsskóli óskar eftir að ráða félags- og samfélagsmiðlafulltrúa í 50% starf næsta skólaár.

Við leitum að öflugum og hugmyndaríkum einstaklingi sem hefur áhuga á að efla félagslíf nemenda, styðja við vellíðan þeirra og halda utan um sýnileika skólans á samfélagsmiðlum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Stuðla að virku, fjölbreyttu og jákvæðu félagslífi nemenda.

  • Vinna náið með stjórn nemendafélagsins og nefndum þess að skipulagi og framkvæmd viðburða.

  • Hvetja nemendur til þátttöku í félagsstarfi og efla samfélagsanda innan skólans.

  • Styðja við að félagslíf skólans stuðli að vellíðan og virkri þátttöku nemenda.

  • Annast umsjón með samfélagsmiðlum skólans.

  • Taka þátt í ráðgjöf, stefnumótun og áætlanagerð í markaðssetningu á netinu.

  • Skapa efni fyrir samfélagsmiðla skólans og miðla efni frá starfsemi allra deilda skólans.

Hæfniskröfur

  • Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi, til dæmis á sviði tómstunda-, félags- eða uppeldisfræða.

  • Menntun og/eða reynsla af markaðssetningu á netinu og samfélagsmiðlum.

  • Hugmyndaauðgi, frumkvæði og gott auga fyrir efnissköpun og textasmíð.

  • Góð samskiptahæfni og hæfni til að vinna með ungu fólki.

  • Sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Utan félaga opinberir starfsmenn hafa gert.

Launakjör samkvæmt gildandi kjarasamningum.

Ráðið er í stöðuna frá 6. ágúst næstkomandi.

Öll kyn eru hvött til að sækja um starfið.

Á heimasíðu skólans, www.borgo.is, eru upplýsingar um skólann og starfsemi hans.

Umsóknir ásamt fylgigögnum sendist í tölvupósti til Ástu Laufeyjar Aðalsteinsdóttur, skólameistara, asta.adalsteinsdottir@borgo.is sem veitir einnig upplýsingar um starfið í síma 535-1702.

Starfshlutfall er 50%

Umsóknarfrestur er til og með 26.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Ásta Laufey Aðalsteinsdóttir

Skólameistari

Tölvupóstur: asta.adalsteinsdottir@borgo.is

Þjónustuaðili

Borgar­holts­skóli

Upplýsingar um starf

Starf

Félags- og samfélagsmiðlafulltrúi Borgarholtsskóla

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50%

Starf skráð

16.06.2026

Umsóknarfrestur

26.06.2026