Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Austur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Yfirlæknir Heilsugæslunnar í Fjarðabyggð

Staðsetning

Austurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

06.07.2026

Umsóknarfrestur

16.07.2026

Yfirlæknir Heilsugæslunnar í Fjarðabyggð

Laus er til umsóknar staða yfirlæknis við Heilsugæsluna í Fjarðabyggð frá 1. september 2026 eða eftir nánara samkomulagi. Heilsugæslan sinnir þjónustu í Fjarðabyggð. Auglýst er eftir sérfræðingi í heimilislækningum.

Helstu verkefni og ábyrgð

Yfirlæknir hefur þríþætta ábyrgð rekstrarlega, faglega og mannauðslega. Í starfinu felast almenn læknisstörf, heilsuvernd og vaktþjónusta. Yfirlæknir skipuleggur læknisþjónustu, tekur þátt í kennslu starfsfólks og nema sem og gæða- og umbótaverkefnum og gefst tækifæri til vísindastarfa. Hann á sæti í rekstrarstjórn í Fjarðabyggð og vinnur með öðrum stjórnendum þar að gæðamálum og framþróun og með stjórnendum þvert á HSA að því að gera HSA leiðandi í klínísku starfi og þjónustu.

Hæfniskröfur

Íslenskt lækningaleyfi og sérfræðileyfi í heimilislækningum. Nám í og reynsla af stjórnun eru hvorutveggja æskilegt en ekki skilyrði. Sjálfstæði í starfi, faglegur metnaður, teymis- og árangursmiðuð viðhorf. Reynsla af og vilji til þverfaglegrar samvinnu (teymisvinnu). Hæfni í mannlegum samskiptum, áreiðanleiki, jákvæðni og sveigjanleiki. Íslenskukunnátta er æskileg. Ökuleyfi.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar fjórtán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu enda slagorð stofnunarinnar, samvinna um velferð.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 16.07.2026

Nánari upplýsingar veitir

Eyjólfur Þorkelsson

Tölvupóstur: eyjolfur.thorkelsson@hsa.is

Þórarna Gró Friðjónsdóttir

Tölvupóstur: thorarna.g.fridjonsdottir@hsa.is

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Austur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Yfirlæknir Heilsugæslunnar í Fjarðabyggð

Staðsetning

Austurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

06.07.2026

Umsóknarfrestur

16.07.2026