Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur á Vöknun

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

16.07.2026

Umsóknarfrestur

30.07.2026

Hjúkrunarfræðingur á Vöknun

Við óskum eftir að ráða metnaðarfullan hjúkrunarfræðing til starfa á vöknun við Hringbraut og kvennadeild. Vöknun er frábær vinnustaður þar sem samvinna, faglegt starf og öryggi sjúklinga eru höfð að leiðarljósi. Starfið er laust frá 1. september 2026 eða eftir samkomulagi og er starfshlutfall 80-100%. Unnið er á þrískiptum vöktum.

Nýtt starfsfólk fær þjálfun eftir þörfum hvers og eins með reyndum hjúkrunarfræðingi.

Vöknun hefur aðsetur á þremur stöðum, E6 Fossvogi, 12A Hringbraut og 23A kvennadeild. Á þessum starfsstöðum vinna 6 sjúkraliðar og um 40 hjúkrunarfræðingar við fjölbreytt og krefjandi verkefni í nánu samstarfi við fagfólk í öðrum sérgreinum. Deild 12A þjónar börnum og fullorðnum eftir svæfingar og slævingar við skurðaðgerðir og önnur inngrip. Deild 23A sinnir vöktun eftir keisara og kvensjúkdómaaðgerðir. Deildin er opin allan sólarhringinn, flestir sjúklingar koma eftir skipulagðar aðgerðir á dagvinnutíma en deildin tekur einnig á móti sjúklingum eftir bráðaaðgerðir á kvöldin, nóttunni og um helgar. Vöknun heyrir undir skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæsluþjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að veita einstaklingshæfa hjúkrun samkvæmt markmiðum Landspítala

  • Að skipuleggja þjónustu deildarinnar með það að markmiði að þarfir og öryggi sjúklings sé í öndvegi

  • Að efla og endurmeta gæði hjúkrunar hverju sinni

  • Að viðhalda árangursríku upplýsingaflæði til að tryggja samfellda hjúkrun og góða samvinnu starfsfólks

  • Að efla ábyrgð og fræðilega þekkingu starfsfólks

  • Að stuðla að góðu og hvetjandi vinnuumhverfi

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Faglegur metnaður

  • Sveigjanleiki, jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar

  • Skipulögð, sjálfstæð og öguð vinnubrögð

  • Áhugi og hæfni til að takast á við breytingar og færni í teymisvinnu

  • Góð íslenskukunnátta áskilin

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun

Tungumálahæfni: íslenska 4/5

Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 30.07.2026

Nánari upplýsingar veitir

Elín Jónsdóttir

deildarstjóri

Tölvupóstur: elinjon@landspitali.is

Sími: 825 9348

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur á Vöknun

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

16.07.2026

Umsóknarfrestur

30.07.2026