
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur/ Ljósmóðir á Vökudeild - nýbura og ungbarnagjörgæslu Barnaspítala Hringsins
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
10.08.2026
Umsóknarfrestur
24.08.2026
Hjúkrunarfræðingur/ Ljósmóðir á Vökudeild - nýbura og ungbarnagjörgæslu Barnaspítala Hringsins
Laus er til umsóknar staða hjúkrunarfræðings/ ljósmóður á Vökudeild. Starfshlutfallið er 80 -100% og veitist starfið frá 1. september 2026 eða eftir nánara samkomulagi. Á Vökudeildinni dvelja nýburar og fyrirburar sem þurfa sérhæft eftirlit og meðferðir eftir fæðingu.
Við leitum eftir hjúkrunarfræðingi/ ljósmóður með sterka faglega sýn og áhuga á þátttöku í faglegri framþróun og innleiðingu nýjunga í framsæknu starfsumhverfi. Viðkomandi fær markvissa og einstaklingshæfða aðlögun í starfi með reyndum hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum.
Helstu verkefni og ábyrgð
Vökudeildin er eina deildin sinnar tegundar á Íslandi. Þjónustan er sérhæfð og spannar vítt svið allt frá þroskahvetjandi hjúkrun yfir í fjölþættar og flóknar gjörgæslumeðferðir nýbura og ungbarna. Fjölskyldumiðuð þjónusta er höfð að leiðarljósi og ríkur þáttur í starfi er stuðningur og ráðgjöf við brjóstamjólkurgjöf í anda stefnu WHO um barnvæn sjúkrahús, kengúrumeðferð og samvist barns við foreldra.
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi og/ eða ljósmóðurleyfi
Góð samskiptahæfni og jákvætt viðmót
Öguð og skipulögð vinnubrögð
Faglegur metnaður
Starfsreynsla í hjúkrun æskileg
Góð íslensku- og enskukunnátta
Hreint sakavottorð
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og viðtölum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Umsækjendur skulu framvísa nýju sakavottorði áður en til ráðningar getur komið, sbr. meginreglur laga um barnavernd sem m.a. koma fram í 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2002.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, ljósmóðir, hjúkrun
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5
Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 24.08.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur/ Ljósmóðir á Vökudeild - nýbura og ungbarnagjörgæslu Barnaspítala Hringsins
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
10.08.2026
Umsóknarfrestur
24.08.2026