
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Íþróttafræðingur
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
-100%
Starf skráð
30.07.2026
Umsóknarfrestur
12.08.2026
Íþróttafræðingur
Sjúkraþjálfun Landspítala í Fossvogi óskar eftir metnaðarfullum íþróttafræðingi til starfa. Um er að ræða dagvinnu og er starfshlutfall 100%. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf frá og með 1. september nk.
Á sjúkraþjálfunardeild B-1 í Fossvogi starfar, auk íþróttafræðings, stór hópur sjúkraþjálfara, sérhæfðir starfsmenn og ritari. Íþróttafræðingur er að miklu leyti með viðveru í æfingasal sem ætlaður er inniliggjandi sjúklingum en stýrir einnig hóptímum. Við leitum að íþróttafræðingi sem hefur öryggi sjúklinga að leiðarljósi, virðir persónuleg og fagleg mörk og stuðlar að öruggu og traustu umhverfi.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir.
Helstu verkefni og ábyrgð
Auka og viðhalda færni sjúklinga í samráði við sjúkraþjálfara
Skipuleggja og sinna hópþjálfun
Hvetja til hreyfingar og skipuleggja starf því tengt
Aðstoða sjúkraþjálfara við meðferð sjúklinga
Skráning og skýrslugerð
Fræðsla til sjúklinga
Þátttaka í fagþróun og umbótastarfi
Hæfniskröfur
Íþróttafræðingur / íþróttakennari
Góð íslenskukunnátta
Faglegur metnaður, frumkvæði og ábyrgð í starfi
Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót
Skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
Reynsla af vinnu með bráðveikum einstaklingum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Viska - stéttarfélag hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sjúkraþjálfun, sérfræðingur,
Tungumálahæfni: íslenska 4/5
Staðsetning: Hringbraut, 105
Starfshlutfall er -100%
Umsóknarfrestur er til og með 12.08.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þóra Björg Sigurþórsdóttir
Tölvupóstur: thorabs@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Íþróttafræðingur
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
-100%
Starf skráð
30.07.2026
Umsóknarfrestur
12.08.2026