Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Nýtt tækifæri: Hjúkrunarfræðingur í fjarvinnu

Staðsetning

Óstaðbundið

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

05.08.2026

Umsóknarfrestur

17.08.2026

Nýtt tækifæri: Hjúkrunarfræðingur í fjarvinnu

Heilsugæslan á Seltjarnarnesi og Vesturbæ leitar að hjúkrunarfræðingi í fjarvinnu. Um er að ræða tilraunaverkefni til eins árs, þar sem hjúkrunarfræðingur mun sinna forflokkun erinda úr Heilsuveru í fjarvinnu.

Öll erindi skjólstæðinga verða forflokkuð af hjúkrunarfræðingi og komið í réttan farveg til þess heilbrigðisstarfsmanns sem best er til þess fallinn að leysa úr þeim hverju sinni. Með slíkri forflokkun erum við að nýta sérfræðiþekkingu allra heilbrigðisstétta sem starfa á heilsugæslu. Þetta er verkefni sem krefst sjálfstæðis, öryggis í klínísku mati og næmni fyrir þörfum skjólstæðinga.

Starfið er unnið í fjarvinnu og er skilyrði að viðkomandi hafi sérstakt rými til vinnu sem tryggir vinnufrið og örugga meðferð upplýsinga.

Fyrstu daga eða vikur mun viðkomandi starfa á heilsugæslustöðinni til að kynnast starfseminni, verkferlum og samstarfsfólki. Lengd þessa tímabils fer eftir reynslu viðkomandi, en mikilvægt er að tryggja trausta þekkingu á verkferlum og farvegum innan heilsugæslunnar áður en fjarvinna hefst. Að þjálfunartímabili loknu færist starfið yfir í fjarvinnu.

Við leitum að einstaklingi í 50-100% starf en erum opin fyrir samtali um lægra starfshlutfall. Æskilegt væri að viðkomandi gæti hafið störf sem fyrst.

Heilsugæslan á Seltjarnarnesi er fjölskylduvænn vinnustaður með frábærum starfsanda og góðri samvinnu milli fagstétta. Hjá okkur ríkir traust og gagnkvæm virðing og leggjum við mikla áherslu á starfsfólki okkar líði vel í vinnu, hvort sem starfið er á stöðinni eða utan.

Nánari upplýsingar um starfsemi heilsugæslunnar má finna á vef Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Forflokkun erinda sem berast heilsugæslunni í gegnum Heilsuveru skilaboð.

  • Meta innihald erinda og afla frekari upplýsinga þegar þörf krefur og tryggja að hvert erindi fái viðeigandi úrlausn eða berist í réttan farveg til viðeigandi heilbrigðisstarfsmanns samkvæmt verklagi.

  • Starfið felur jafnframt í sér náið samstarf og samskipti við annað starfsfólk heilsugæslunnar.

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Reynsla af heilsugæsluhjúkrun kostur

  • Þekking á Heilsuveru

  • Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð

  • Reynsla og áhugi á teymisvinnu

  • Mikil samskiptahæfni og sveigjanleiki

  • Íslenskukunnátta og góð tölvukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdastjóra mannauðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt að óska eftir hreinu sakavottorði.

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttinda stefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Starfshlutfall er 50-100%

Umsóknarfrestur er til og með 17.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Hanna Lind Garðarsdóttir

Tölvupóstur: hanna.lind.gardarsdottir@heilsugaeslan.is

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Nýtt tækifæri: Hjúkrunarfræðingur í fjarvinnu

Staðsetning

Óstaðbundið

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

05.08.2026

Umsóknarfrestur

17.08.2026