Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur á meðferðareiningu geð- og fíknisjúkdóma

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

12.06.2026

Umsóknarfrestur

22.06.2026

Hjúkrunarfræðingur á meðferðareiningu geð- og fíknisjúkdóma

Viltu starfa í öflugu teymi þar sem fagmennska, þróun og raunveruleg áhrif skipta máli?

Við leitum að hjúkrunarfræðingum sem vilja starfa við sérhæfða geð- og fíknihjúkrun þar sem áhersla er lögð á teymisvinnu, klíníska færni, batamiðaða þjónustu og stöðugar umbætur.

Á meðferðareiningunni starfar samhent þverfaglegt teymi sem sinnir einstaklingum með alvarlegan og samsettan geð- og vímuefnavanda. Starfið er fjölbreytt, krefjandi og gefandi og býður upp á einstök tækifæri til að þróa klíníska færni og sérhæfa sig í geð- og fíknihjúkrun.

Framundan eru spennandi breytingar og áframhaldandi uppbygging þjónustunnar sem skapa tækifæri fyrir hjúkrunarfræðinga til að taka þátt í þróun meðferðar, þjónustu og teymisvinnu.

Starfið hentar jafnt þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í hjúkrun og þeim sem búa yfir reynslu og vilja þróa sig áfram í sérhæfðu klínísku umhverfi með markvissri starfsaðlögun, faglegri leiðsögn og fjölbreyttum tækifærum til starfsþróunar.

Leitað er að hjúkrunarfræðingum í 50-100% starfshlutfall í dagvinnu eða vaktavinnu eftir samkomulagi. Upphafsdagur ráðningar er 15.ágúst 2026 eða eftir nánara samkomulagi.

Um meðferðareininguna

Undir meðferðareininguna heyra:

  • bráðalegudeild geð- og fíknisjúkdóma

  • göngudeild geð- og fíknisjúkdóma

  • afeitrunardeild ólögráða ungmenna

  • Teigur

Unnið er þvert á legu-, dag- og göngudeild sem veitir einstaka innsýn í bataferli skjólstæðinga og fjölbreytt tækifæri til klínískrar þróunar.

Við bjóðum meðal annars upp á

  • öfluga teymisvinnu og faglegan stuðning

  • markvissa og einstaklingshæfða starfsaðlögun

  • faglega leiðsögn

  • sérhæft starfsþróunarár fyrir hjúkrunarfræðinga

  • tækifæri til sérhæfingar og þátttöku í umbótastarfi

  • jákvætt og styðjandi starfsumhverfi

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Mat, skipulagning og framkvæmd hjúkrunarmeðferða

  • Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu

  • Meðferðarsamtöl, stuðningur og hvatning

  • Samskipti við aðstandendur

  • Þátttaka í umbótastarfi og þróun þjónustunnar

  • Skráning og eftirfylgd meðferðar

Hæfniskröfur

Við leitum að hjúkrunarfræðingum sem hafa:

  • íslenskt hjúkrunarleyfi

  • áhuga á geð- og fíknihjúkrun

  • áhuga á skaðaminnkun og batamiðaðri þjónustu

  • búa yfir góðri samskiptafærni

  • sýna faglegan metnað, frumkvæði og sjálfstæði í starfi

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna

Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 3/5

Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert. is is

Starfshlutfall er 50-100%

Umsóknarfrestur er til og með 22.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Birna Óskarsdóttir

Tölvupóstur: birnaos@landspitali.is

Edda Þórisdóttir

Tölvupóstur: eddatho@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur á meðferðareiningu geð- og fíknisjúkdóma

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

12.06.2026

Umsóknarfrestur

22.06.2026